Körfubolti

Grinda­vík marði Stjörnuna í lokin

Siggeir Ævarsson skrifar
Daisha Bradford var stigahæst Grindavíkurkvenna í dag
Daisha Bradford var stigahæst Grindavíkurkvenna í dag Vísir/Diego

Grindavík tók á móti Stjörnunni í 8-liða úrslitum VÍS bikarsins í dag í leik sem varð æsispennandi fram á síðustu sekúndur.

Gengi Grindavíkur hefur ekki verið upp á marga fiska í undanförnum leikjum en liðið er búið að tapa níu deildarleikjum í röð. Breytingar hafa orðið á leikmannahópi liðsins og nýju leikmennirnir, þær Daisha Bradford og Mariana Duran lögðu sín lóð á vogarskálarnar í  kvöld.

Heimakonur hófu leikinn af krafti og leiddu 27-19 eftir fyrsta leikhluta en eins og svo oft í undanförnum leikjum náðu þær ekki að fylgja eftir góðri byrjun. Gestirnir söxuðu jafnt og þétt á forskotið og komust yfir um miðjan fjórða leikhluta, staðan orðin 63-68.

Þá náðu Grindvíkingar loks að hrista af sér slenið og skoruðu sex stig í röð án svars. Þær Bradford og Hulda Björk Ólafsdóttir skoruðu saman síðustu níu stig Grindavíkur en Hulda hefði klárlega getað orðið skúrkur kvöldsins þegar hún klikkaði á tveimur vítum í stöðunni 72-70 þegar þrjár sekúndur voru á klukkunni.

Til allrar hamingju fyrir hana og Grindvíkinga náði Isabella Ósk Sigurðardóttir sóknarfrákastinu, einu af sínum fimm í leiknum, og Grindvíkingar sluppu með skrekkinn og inn í 4-liða úrslit VÍS bikarsins.

Áðurnefnd Daisha Bradford var stigahæst Grindvíkinga með 21 stig, tíu fráköst og fjórar stoðsendingar. Mariana Duran og Ólöf Rún Ólafadóttir komu næstar með tíu stig hvor.

Hjá Stjörnunni var Diljá Ögn Lárusdóttir stigahæst með 25 stig og Denia Davis- Stewart kom næst með 20 stig og 16 fráköst. Katarzyna Trzeciak, sem skipti á dögunum úr Grindavík yfir í Stjörnuna skilaði núll stigum í hús á 31 mínútu og var Stjarnan í -14 þær mínútur sem hún spilaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×