Handbolti

Nær því að mæta Ís­landi eftir magnað lang­skot í lokin

Sindri Sverrisson skrifar
Milan Lazarevski frá Norður-Makedóníu og Elias Kofler frá Austurríki í átökum í Varazdin í Króatíu í dag.
Milan Lazarevski frá Norður-Makedóníu og Elias Kofler frá Austurríki í átökum í Varazdin í Króatíu í dag. Getty/Vjeran Zganec

Filip Kuzmanovski tryggði Norður-Makedóníu stig gegn Austurríki í dag með mögnuðu langskoti á síðustu stundu, í 29-29 jafntefli á HM í handbolta. Sviss vann stórsigur á Túnis.

Austurríki er því með þrjú stig í milliriðli II og þar ríkir mikil spenna, en tvö efstu liðin úr þeim milliriðli mæta svo liðum úr milliriðli Íslands í 8-liða úrslitum mótsins. Frakkar eru efstir með 4 stig og mæta Ungverjalandi (3 stig) í kvöld. Holland er með 2 stig líkt og Norður-Makedónía, en Katar með 0 stig, en Holland og Katar mætast í dag.

Ljóst er að allt þarf að ganga upp hjá N-Makedóníumönnum og þeir að vinna Katar og Frakkland í síðustu leikjum sínum, til að eygja von um 2. sæti riðilsins, en markið frá Kuzmanovski heldur þeim á lífi.

Austurríki var 14-13 yfir í hálfleik gegn Norður-Makedóníu í dag, eftir 6-2 kafla á lokamínútum fyrri hálfleiks, en liðið skoraði lokamark fyrri hálfleiksins á síðustu sekúndu.

Gríðarleg spenna var í leiknum í seinni hálfleik og jafnt á öllum tölum. Þegar tæpar tvær mínútur voru eftir varði Florian Kaiper vítakast fyrir Austurríki, frá Kuzmanovski, og í staðinn kom Eric Damböck Austurríki yfir, 28-27, með vítakasti á hinum enda vallarins.

Marko Mitev náði að jafna metin 40 sekúndum fyrir leikslok, með sínu sjötta marki í leiknum, en Austurríki tók svo leikhlé til að undirbúa lokasókn sína. Lukas Hutecek lyfti sér svo upp og skoraði þegar örfáar sekúndur voru eftir, skoraði sitt sjötta mark og virtist hafa tryggt Austurríki sigur, en svo fór ekki því Kuzmanovski tókst einhvern veginn að jafna metin á síðustu stundu.

Sviss fikrar sig nær Þýskalandi og Danmörku

Sviss vann Túnis af miklu öryggi, 37-26, og var í raun búið að gera út um leikinn í fyrri hálfleik, en staðan að honum loknum var 20-11.

Svisslendingar eru því með í baráttunni um sæti í 8-liða úrslitum en þeir eru með þrjú stig í milliriðli I, á meðan að Túnis er enn án stiga. Danmörk og Þýskaland eru efst í þessum milliriðli með fjögur stig hvort, og mætast í kvöld. Fyrst mætast þó Tékkland og Ítalía, en Tékkar eru með eitt stig og Ítalir tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×