Innlent

Valt inn á byggingar­svæði eftir á­rekstur við strætó

Árni Sæberg skrifar
Jepplingurinn endaði á hliðinni.
Jepplingurinn endaði á hliðinni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að árekstri jepplings og strætisvagns sem varð á gatnamótum Snorrabrautar og Bergþórugötu í Reykjavík í morgun. Jepplingurinn, nánar tiltekið Suzuki Jimny, valt inn á byggingarsvæði eftir áreksturinn.

Í tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Facebook segir að tilkynning um áreksturinn hafi borist klukkan 10:38. Jepplingnum hefði verið ekið austur Bergþórugötu og inn á gatnamótin, en strætisvagninum ekið suður Snorrabraut, þegar árekstur varð með þeim. 

Þarna eru umferðarljós, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu ljósanna þegar áreksturinn varð. Við hann hafnaði fólksbifreiðin utan vegar og valt.

„Þau sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið 1707@lrh.is“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×