Erlent

Einn látinn og nokkur hundruð þúsund heimili án raf­magns

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Óveðrið Éowyn olli skemmdum víða.
Óveðrið Éowyn olli skemmdum víða. EPA

Maður er látinn og yfir 725 þúsund heimili og aðrar húseignir voru án rafmagns á Írlandi eftir að óveðrið Eowyn reið yfir Írland og Bretlandseyjar í gær. 

Í umfjöllun Guardian segir að ein tilkynning hafi borist um mannslát vegna óveðursins. Karlmaður hafi orðið undir tré og látist er hann ók bíl í Donegal héraði í Norðurhluta Írlands í gær.

Mikill viðbúnaður var hjá björgunarsveitum víða um landið og skólum og annarri þjónustu var lokað. Þá féllu ferðir almannasamganga niður. 

Fjöldi tilkynninga um eyðilagða innviði hafi borist bæði á Írlandi og víðs vegar í Bretlandi. Þá hafi um 130 þúsund heimili verið án vatns á tímabili. Samkvæmt upplýsingum frá orkuveitu Írlands eru „þó nokkrir dagar“ þar til rafmagn verður komið á alls staðar að nýju.

Enn eru gular veðurviðvaranir í gildi vegna veðursins en búist er við að versta veðrinu sé lokið.  Veðurfræðingar spá áframhaldandi vindum, að því er kemur fram í frétt BBC


Tengdar fréttir

Rauðar viðvaranir vegna Éowyn

Óveðrið Eowyn gengur nú yfir Bretlandseyjar og Írland er veðrið þegar farið að valda vandræðum. Þannig hefur fjölmörgum flugferðum verið aflýst á flugvöllunum í Glasgow, Edinborg og í Dyflinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×