Handbolti

Að­eins tvær þjóðir spiluðu hægar en Ís­land á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þarf íslenska liðið að spila hraðari bolta? Tölfræðin sýnir að Ísland var í hópi þeirra þjóða sem náðu fæstum sóknum að meðaltali í leik.
Þarf íslenska liðið að spila hraðari bolta? Tölfræðin sýnir að Ísland var í hópi þeirra þjóða sem náðu fæstum sóknum að meðaltali í leik. Vísir/Vlhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta sat eftir í milliriðlum á heimsmeistaramótinu þrátt fyrir fimm sigra í sex leikjum. Nú leita margir skýringa og tölfræðin gefur vissulega ákveðna mynd. Það er þó sérstaklega einn tölfræðilisti sem er meira sláandi en hinir.

Alþjóða handboltasambandið tekur saman ítarlega tölfræði á mótinu og meðal annars eru taldar sóknir allra liðanna. Þar kemur íslenska liðið ekki vel út þegar litið er á fjölda sókna.

Í tölfræði IHF eru aðeins tvær þjóðir sem hafa spilað hægari bolta til þessa í mótinu, það er eru með færri sóknir að meðaltali í leik.

Íslenska landsliðið er nefnilega í 30. sæti af 32 liðum yfir flestar sóknir að meðaltali í leik.

Íslenska liðið spilaði 318 sóknir í leikjunum sex eða 53 að meðaltali í leik. Austurríkismenn spiluðu 51,3 sóknir í leik og neðstir eru Tékkar með 50,5 sóknir að meðaltali í leik.

Það var vissulega spilað frekar hægt í riðli Íslands því Króatar eru í 26. sæti, Slóvenar í 28. sæti og Egyptar eru í sæti á undan Íslandi, í 29. sætinu. Íslenska liðið spilaði samt hægast af þeim öllum.

Gínea er í efsta sætinu með 60,3 sóknir í leik en af þeim þjóðum sem voru í keppni um sæti í átta liða úrslitunum eru Portúgalar efstir með 58,7 sóknir í leik. Á eftir þeim komu síðan Svíar, Frakkar og Danir.

Aðalástæðan fyrir því hversu sláandi þessi tölfræði er má rekja til hvernig þjálfari Snorri Steinn Guðjónsson var með Val.

Valslðið keyrði nefnilega upp hraðann í sínum leikjum eins og enginn væri morgundagurinn. Það breyttist heldur ekki þegar liðið mætti á stóra sviðið í Evrópudeildinni. Hann hélt áfram að keyra á mótherjana.

Þegar Snorri tók við íslenska landsliðinu þá talaði hann líka um að losa handbremsuna.

Íslenska liðið spilaði hraðan handbolta í fyrstu leikjunum undir hans stjórn en síðan er eins og það hafi smá saman hægt og hægst á liðinu. Hvort þetta sé komið til að vera verður að koma í ljós en það vantaði bara svo ofboðslega lítið upp á að íslenska liðið færi lengra í keppninni.

Hér fyrir neðan má sjá allan listann hjá IHF.

IHF



Fleiri fréttir

Sjá meira


×