Man City komst í umspilið eftir allt saman

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Man City fagna.
Leikmenn Man City fagna. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN

Manchester City komst í umspil um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu þökk sé 3-1 heimasigri á Club Brugge. Lærisveinar Pep Guardiola voru hins vegar undir í hálfleik.

Englandsmeistarar Manchester City áttu ótrúlegt en sátt á hættu að falla úr leik í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Þrátt fyrir að nýtt fyrirkomulag keppninnar geri stærstu liðum álfunnar nær ómögulegt að missa af sæti í umspilinu um sæti í 16-liða úrslitum þá stefndi um tíma sem lærisveinar Guardiola væru úr leik. 

Ljósbláir þurftu sigur á heimavelli gegn Club Brugge frá Belgíu. Fyrir fram var búist við öruggum heimasigri en það skaut skökku við þegar Raphael Onyedika kom gestunum yfir undir lok fyrri hálfleiks. Staðan þegar flautað var til leiks í síðari hálfleik 0-1 en heimamenn voru ekki lengi að snúa stöðunni sér í vil. 

Mateo Kovačić jafnaði metin á 53. mínútu eftir undirbúning John Stones. Innan við tíu mínútum síðar var staðan orðin 2-1 þegar Joel Ordóñez varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir fyrirgjöf Joško Gvardiol.

Savinho gerði svo út um dæmið á 77. mínútu. Aftur var Stones með stoðsendinguna. Staðan orðin 3-1 og reyndust það lokatölur á Etihad-vellinum í Manchester.

Bæði lið komast í umspil með 11 stig, Man City endaði í 22. sæti á meðan Club Brugge endaði í 24. sætinu, því síðasta sem gefur sæti í umspili um sæti í 16-liða úrslitum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira