Innlent

Skipaður skrif­stofu­stjóri fjár­mála

Atli Ísleifsson skrifar
Guðmann Ólafsson.
Guðmann Ólafsson. Stjr

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Guðmann Ólafsson skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála í heilbrigðisráðuneytinu.

Í tilkynningu á vef heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að ákvörðun ráðherra sé í samræmi við mat ráðgefandi nefndar sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda, líkt og kveðið er á um í lögum um Stjórnarráð Íslands.

„Guðmann er með MSc gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Buisness School og BS gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Hann hóf störf sem sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu árið 2018 og hefur frá árinu 2024 verið staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála. Áður starfaði hann í rúm fimm ár hjá Seðlabanka Íslands og fyrir þann tíma um sex ára skeið hjá Arion verðbréfavörslu.

Í störfum sínum í heilbrigðisráðuneytinu hefur Guðmann tekið virkan þátt í gerð fjármálaáætlunar og fjárlaga og komið að eftirliti með rekstri ráðuneytisins og fjármálum undirstofnana þess. Hann hefur leitt stefnumótun, gerð og innleiðingu nýrra reiknilíkana á sviði sjúkrahússþjónustu og átt sæti í verkefnisstjórn um kynjaða hagstjórn. Auk þessa hefur hann tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi vegna þjónustutengdrar fjármögnunar heilbrigðisstofnana og tekið virkan þátt í að miðla þeirri þekkingu til hagaðila innan íslenska heilbrigðiskerfisins.

Í álitsgerð hæfnisnefndar segir að Guðmann hafi í störfum sínum öðlast fjölþætta og langvarandi reynslu af framkvæmd opinberra fjármála og fjármögnunar heilbrigðisþjónustu. Þar segir einnig að Guðmann hafi metnað til að ná árangri og hafi sýnt frumkvæði og sjálfstæði í störfum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×