Lekur úr lofti og leik Hauka og Þórs frestað Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 31. janúar 2025 18:17 Kristinn Óskarsson tók endanlega ákvörðun um að fresta leiknum. skjáskot / stöð 2 sport Leik Hauka og Þórs Þorlákshafnar sem átti að fara fram í 16. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld hefur verið frestað. Leikurinn er kominn á dagskrá sunnudaginn 2. febrúar kl. 17:00. Kristinn Óskarsson, dómari, tók ákvörðun rétt um hálftíma áður en leikurinn átti að hefjast um að leiknum skildi frestað. Ástæða þess að fresta þurfi leiknum er að vatn lekur meðfram eldvarnarlúgum í þaki íþróttahússins og niður á gólf. Slæmt veður gengur yfir landið og samkvæmt starfsfólki íþróttahússins að Ásvöllum er ekki hægt að laga lekann nema utan frá. Eins og veðrið er akkúrat núna er ekkert vit því að fara að príla upp á þak og því þarf að fresta leiknum. „Öryggi leikmanna er í húfi og þar sem ekki er hægt að laga lekann er leiknum í raun sjálfhætt,“ sagði Kristinn Óskarsson, sem átti að dæma leikinn, í stuttu viðtali við Vísi. Hann sagðist ekki vita hvenær leikurinn yrði spilaður, en samkvæmt nýjustu upplýsingum á að reyna aftur á sunnudaginn. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá lekann úr loftinu og viðtalið við Kristinn. Bónus-deild karla Haukar Þór Þorlákshöfn
Uppgjörið: Höttur - Tindastóll 85-97 | Tindastóll eltir Stjörnuna áfram á toppnum eftir sigur á Egilsstöðum