Atvinnulíf

Fermingar­myndin ekki til út­flutnings

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Krían, segir eiginmanninn duglegan að færa sér fyrsta kaffibollann. Hrönn viðurkennir að fermingamyndin er hvergi til sýnist. Enda fermdist hún á níunda áratugnum sem kallast ekki beint bestu tískuárin.
Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Krían, segir eiginmanninn duglegan að færa sér fyrsta kaffibollann. Hrönn viðurkennir að fermingamyndin er hvergi til sýnist. Enda fermdist hún á níunda áratugnum sem kallast ekki beint bestu tískuárin. Vísir/Vilhelm

Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, segir engan hasar á morgnana lengur. Þau hjónin séu tvö með latan hund og oftar en ekki er Hrönn svo heppin að eiginmaðurinn gefur henni fyrsta kaffibollann um það leyti sem hún fer fram úr.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Útvarpsvekjaraklukkan fer af stað klukkan sjö og ég hlusta á fréttirnar en oft er ég þó vöknuð einhverjum mínútum fyrr en bíð alltaf eftir fréttum. Mér finnst gott að hlusta á talað mál á morgnana og þá sérstaklega eitthvað fréttatengt svo ég hlusta áfram á morgunútvarpið og fræðist oft um ótrúlegustu hluti.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana

Ég elska rólega morgna og þarf minn tíma og þar sem við erum bara tvö heima með latan hund þá er lítill æsingur á heimiliinu. 

En fyrst af öllu þarf ég þó kaffi og er svo heppin að eiginmaðurinn er skilningsríkur á það og færir mér gjarnan bolla um það leyti sem ég fer framúr. 

Fyrsti kaffibolli dagsins er sá besti enda með flóaðri haframjólk. 

Svo lærði ég það af kettinum sem við áttum í rúm 16 ár að teygja alla skanka áður en ég smelli mér í dásamlegu sturtuna.“

Hvernig myndir þú lýsa fermingamyndinni þinni?

„Hún hangir hvergi uppi eða er í albúmi er það ekki nægjanlegt svar ? Ég er fermingabarn á níunda áratugnum og það eru ekki beint bestu tískuárin en þetta var samt allt innan þolanlegra marka. 

Fékk að vísu fermingarkápu sem ég fór aldrei í ekki einu sinni á fermingardaginn en var silkistrigaskóm sem notaði lengi og mikið.“

Hrönn segist hafa lært það vel af svissnesku yfirmönnum sínum hjá Radisson SAS að virða skilafresti. Hrönn er skipulögð að eðlisfari og tekur regluleg „húkk“ á verkefnalistann sinn og hreinsar upp ef þess þarf. Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég er í mjög spennandi verkefni sem er að móta stefnu og starfsemi Nýsköpunarsjóðsins Kríu en um áramótin síðustu var starfsemi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu sameinuð í einn sjóð með nýjum lögum. Framundan er stefnumótunarvinna þar sem fjárfestingaáætlun sjóðsins og starfsemi verður í forgrunni. Mér finnst fátt skemmtilegra en að byggja upp eitthvað nýtt, vinna framtíðarplön og byggja upp gott teymi. Hlakka því mikið til komandi vikna.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég er frekar skipulögð en algjörlega háð dagatalinu mínu og verkefnalistum. Í mínu starfi er mikið um fundi og viðburði og ég þarf því helst að taka frá tíma fyrir verkefnin og ef það gleymist geta dagarnir orðið langir. 

Yfirmenn mínir hjá Radisson SAS voru svissneskir og þar lærði ég að virða skilafresti (e. deadlines) og ekki láta verkefnin hlaðast upp. 

Ég tek reglulega „húkk“ og hreinsa upp frekar en að láta halann þvælast fyrir mér. 

Ég hef sjálf litla þolinmæði fyrir því að þurfa að ýta á eftir hlutunum.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Mér finnst gott að vera komin í rúmið um hálf ellefu og þá gjarnan lesa pínu áður en ég leggst til svefns. Ég er með nokkrar úrvals bækur á náttborðinu svo það er úr nægu að velja. 

Ég trúi því að góður svefn sé einn mikilvægasti þátturinn í því halda góðri heilsu svo ég legg mikið upp úr því að fá sjö til átta tíma svefn. 

Ég fylgist með svefninum í Garmin úrinu og finnst það alveg frábært aðhald.“


Tengdar fréttir

Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“

Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, opinberar sök í smá prakkarastriki á Skaganum þegar hann var sex ára en almennt telur hann sig ekki hafa verið mikinn prakkara í æsku. Uppáhaldsmorgnarnir eru þegar hann byrjar daginn í golf hermi með félögunum.

Forstjórinn sem saumar þjóðbúninginn öll mánudagskvöld

Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspósts, byrjar daginn á því að fá sér kaffi með sínum besta manni. Öll mánudagskvöld situr hún með systrum sínum og saumar íslenska þjóðbúninginn undir handleiðslu móður sinnar og frænku.

„Ætla ekki að ljúga því að ég sé einhver ofurhress morguntýpa“

Bjarni Gaukur Sigurðsson framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Blikk er greinilega ólíkindartól sem fer sínar eigin leiðir. Því Bjarni segir að ef hann væri ofurhetja í teiknimynd, væri hann án efa Svarta kvikindið. Bjarni segir það ákveðna áskorun að fylgja ekki eftir óskrifuðum reglum samfélagsins.

„Hef einstaklega gaman af þessari stanslausu niðurlægingu“

Hrefna Sigfinnsdóttir, forstjóri Creditinfo, hefur oft sett sér það markmið um áramótin að verða sjúklega góð í golfi. Eftir fjögur ár af skemmtilegri en stanslausri niðurlægingu ákvað hún að setja sér nýtt markmið fyrir þetta ár: Að hafa gaman að þessu. Hrefna fer í ræktina með fimmtíu ára gömlum vinskap þrisvar í viku.

„Tek góða bæn, þakka fyrir daginn og sofna á núll einni“

Daníel Rafn Guðmundsson, umsjónarmaður á Hlaðgerðarkoti og framkvæmdastjóri bifreiðaverkstæðisins Hemils í Kópavogi, byrjar daginn á því að drekka kaffi og hlusta á orð dagsins á Rás 1. Sem hann segir góða leið til að byrja daginn og áður en maður fer í símann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×