Veður

Gular við­varanir og ekkert ferða­veður

Lovísa Arnardóttir skrifar
Gular viðvaranir taka gildi í dag og gilda út daginn á miðhálendi, Vestfjörðum og Norðvesturlandi.
Gular viðvaranir taka gildi í dag og gilda út daginn á miðhálendi, Vestfjörðum og Norðvesturlandi. Veðurstofan

Gul veðurviðvörun tekur gildi klukkan 10 í Breiðafirði, klukkan 12 á Vestfjörðum, klukkan 13 á Ströndum og Norðurlandi vestra og klukkan 14 á Miðhálendi. Viðvörunin verður í gildi þar til snemma á morgun, mánudag. Í viðvörun Veðurstofunnar segir að búast megi við sunnan 13 til 20 metrum á sekúndu og vindhviðum allt að 35 metrum á sekúndu. Það gæti verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að næstu daga verði á landinu suðlægar áttir sem komi með mildu lofti. Því er spáð vætusömu veðri víða um land en þó lengst af þurrt norðaustanlands.

Í dag verður rigning með köflum á sunnan- og suðvestanverðu landinu, en slydda eða snjókoma norðvestantil í fyrstu. Þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hlýnandi veður, hiti verður á bilinu fjögur til sjö stig seinnipartinn.

Á morgun verður rigning eða súld með köflum sunnan- og vestanlands, en þurrt að mestu á Norðausturlandi. Dregur aðeins úr vindi síðdegis, sunnan 8 til 15 metrar á sekúndu annað kvöld, hvassast norðantil. Áfram milt, hiti 4 til 8 stig.

Á þriðjudag verður áfram minnkandi vindur og suðlæg átt, fimm til 15 metrar á sekúndu síðdegis. Rigning eða súld öðru hverju sunnan- og vestanlands, en bjart með köflum norðaustantil. Hiti 3 til 7 stig, en kólnar fyrir norðan og austan seinnipartinn.

Á vef Vegagerðar kemur fram að víða er snjóþekja og snjókoma og hálkublettir. Verið er að kanna ástand vega á Vestfjörðum. Nánar hér á vef Vegagerðar og nánar um veður á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:

Sunnan og suðvestan 10-18 m/s. Rigning eða súld með köflum, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Dregur úr vindi seinnipartinn. Hiti 4 til 8 stig.

Á þriðjudag:

Austlæg átt 5-13. Lítilsháttar rigning eða súld og 5 stiga hiti á sunnanverðu landinu, en bjart og hiti nálægt frostmarki fyrir norðan.

Á miðvikudag:

Vaxandi austan- og suðaustanátt, 13-18 seinnipartinn. Rigning eða súld með köflum, einkum suðaustantil, en lengst af þurrt fyrir norðan. Hiti 0 til 6 stig, en um frostmark norðanlands.

Á fimmtudag og föstudag:

Ákveðin austan- og suðaustanátt. Rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 1 til 6 stig, en nálægt frostmarki norðan- og austantil.

Á laugardag:

Útlit fyrir suðaustlæga átt. Dálítil væta sunnan- og vestanlands, hiti 1 til 6 stig, en annars þurrt að mestu og hiti í kringum frostmark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×