Íslenski boltinn

Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum

Sindri Sverrisson skrifar
Framarar mega skrá núna skrá nýja leikmenn að vild.
Framarar mega skrá núna skrá nýja leikmenn að vild. vísir/Diego

Það tók ekki langan tíma fyrir Fram að losna af lista FIFA, alþjóða knattspyrnusambandsins, yfir félög í félagaskiptabanni. Grótta er hins vegar enn í banni.

Þetta má sjá á sérstökum vef FIFA sem heldur utan um þau félög sem eru í félagaskiptabanni. Athygli vakti í síðustu viku að tvö íslensk félög höfðu þá bæst á listann en mikið virðist hafa vantað upp á samskipti á milli FIFA, KSÍ og félaganna tveggja í aðdraganda þess.

Mál Framara var hins vegar auðleyst en eins og Vísir greindi fyrst frá snerist mál þeirra um Venesúelabúann Jesús Yendis sem lék með liðinu árið 2022.

Yendis mun hafa farið að láni heim til Venesúela í tíu mánuði, þegar hann átti enn eitt ár eftir af samningi sínum við Fram. Því átti hann tvo mánuði inni hjá Fram að lánsdvöl lokinni en mun samkvæmt því sem Vísir kemst næst ekki hafa mætt til vinnu þá mánuði, og því töldu Framarar sér ekki skylt að greiða honum launin.

Grótta eina íslenska félagið á listanum

Ekki var um verulegar fjárhæðir að ræða og hafa Framarar nú þegar leyst málið og eru ekki lengur í skammarkróknum hjá FIFA. Grótta situr hins vegar enn eftir á listanum og er þar sagt í banni í næstu þremur félagaskiptagluggum, en líkt og í tilviki Fram hefur félagið möguleika á að losna fljótt úr banninu.

Ekki liggur fyrir um nákvæmlega hvað mál Gróttu snýst en Þorsteinn Ingason, formaður knattspyrnudeildar Gróttu, fullyrti í samtali við Vísi í síðustu viku að félagið hefði ekki áhyggjur af málinu og myndi greiða þær skuldir sem þyrfti. Hann kvartaði hins vegar undan algjöru samskiptaleysi af hálfu Gróttu.

Í síðustu viku hafði KSÍ, sem sér um að framfylgja banni FIFA innanlands, ekki heldur heyrt neitt frá FIFA í tengslum við bönnin og sagði Haukur Hinriksson, lögfræðingur KSÍ, það vera sérstakt. Hafði hann þá sent bréf til FIFA og óskað eftir skýringum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×