Innlent

Fyrst féll meiri­hlutinn og nú falla trén

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Skógarhögg hefst í Öskjuhlíð í dag.
Skógarhögg hefst í Öskjuhlíð í dag. Vísir/Sigurjón

Það er ekki aðeins meirihlutinn í Reykjavík sem er fallinn heldur bíða sömu örlög trjáa í Öskjuhlíð í dag. Undirbúningur að skógarhöggi á svæðinu er hafinn og til stendur að hefjast handa við að fella trén í kringum hádegið. Einhver tré virðast þó þegar hafa verið felld á svæðinu líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Líkt og kunnugt er var annarri flugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli lokað á dögum vegna mikils trjágróður í Öskjuhlíð. Hæð trjánna er sögð hafa áhrif á öryggi flugfarþega um Reykjavíkurflugvöll. Lokunin átti sér langan aðdraganda en málið er meðal þess sem valdið hefur óróleika í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Þessi skógarhöggsmaður var byrjaður að fella tré upp úr klukkan ellefu.Vísir/Egill

Sjá einnig: Fyrstu trén felld á morgun

Og nú er hafinn undirbúningur að skógarhöggi. „Þeir eru úti í skógi núna þarna á þessu svæði fólkið sem sér um borgarskógana og eru að undirbúa. Ætli þau fari ekki að saga um hádegið, upp úr ellefu kannski,“ segir Hjalti Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóri skrifstofu reksturs og umhirðu hjá Reykjavíkurborg, í samtali við Vísi.

Til stendur að fella fleiri tré í Öskjuhlíðinni í dag.Vísir/Sigurjón

„Það þarf að merkja þetta upp og það er ýmiss undirbúningur sem þarf að fara fram áður en allt hefst. Verkefnið verður hafið innan fárra klukkustunda,“ segir Hjalti. 

Nokkuð hefur verið deilt um trén í Öskjuhlíð í tengslum við lokun flugbrautar.Vísir/Sigurjón

Tökumaður fréttastofu tók meðfylgjandi myndir af nýfelldum trjám í Öskjuhlíðinni rétt fyrir klukkan tíu í morgun. Hjalta var ekki kunnugt um nákvæma málavexti vegna þeirra trjáa sem þegar hafa verið felld en gerir ráð fyrir að föllnu trén tengist sama verkefni.

„Ef það eru einhver nýfelld tré á þessu svæði þá er það örugglega tengt verkefninu,“ segir Hjalti.

Frekari undirbúningur stendur yfir á svæðinu.Vísir/Sigurjón

Einar Þorsteinsson borgarstjóri skýrði frá því í þættinum Reykjavík síðdegis í gær að borgin hygðist byrja á því að fella 23 tré í Öskjuhlíðinni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×