Viðskipti innlent

Jón kaupir Sigurð Gísla út úr IKEA

Árni Sæberg skrifar
Verslun IKEA að Kauptúni 4 í Garðabæ.
Verslun IKEA að Kauptúni 4 í Garðabæ. Vísir/Vilhelm

Jón Pálmason hefur keypt helmingshlut Sigurðar Gísla Pálmasonar, bróður hans, í Miklatorgi hf., sem rekur IKEA hér á landi.

Þetta kemur fram í fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra en Viðskiptablaðið greindi fyrst frá og hefur fengið staðfest að Jón sé nú eini eigandi IKEA á Íslandi.

Hafa staðið í stórræðum

Þeir bræður hafa rekið IKEA hér á landi saman um árabil en faðir þeirra, Pálmi Jónsson, sem kenndur er við Hagkaup, stofnaði fyrstu verslun IKEA hér á landi árið 1981. Þeir ráku einnig IKEA í Eystrasaltslöndunum frá árinu 2010 þangað til í fyrra.

Greiddu vel rúman milljarð í arð

Samkvæmt ársreikningi Miklatorgs hf. vegna rekstrarársins september 2023 til ágúst 2024 námu rekstrartekjur þess 15 milljörðum króna. Hagnaður hafi numið rétt rúmlega einum milljarði. Eigið fé í lok ágúst í fyrra hafi numið 1,5 milljörðum króna.

Jón og Sigurður Gísli ásamt þáverandi umhverfisráðherra þegar íbúðir IKEA í Urriðaholti fengu Svansvottun fyrir nokkrum árum.Urriðaholt

Stjórn félagsins lagði til að arður yrði greiddur til hluthafanna tveggja að fjárhæð 1,3 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×