Sport

Dag­skráin: Körfuboltakvöld og Reykjavíkurslagur í Vestur­bæ

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Þorbjarnarson og félagar í KR fá Valsmenn í heimsókn í Reykjavíkurslag í kvöld.
Þórir Þorbjarnarson og félagar í KR fá Valsmenn í heimsókn í Reykjavíkurslag í kvöld. Vísir / Pawel Cieslikiewicz

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á föstudögum.

Átjánda umferð Bónus deildar karla í körfubolta klárast í kvöld með tveimur leikjum. Fyrst er leikur ÍR og Njarðvíkur og svo er Reykjavíkurslagur milli KR og Vals.

Eftir leikina verður síðan Bónus Körfuboltakvöld á dagskrá þar sem öll átjánda umferðin verður gerð upp á skemmtilegan hátt.

Það verður einnig sýnt frá ensku b-deildinni og sádi-arabíska fótboltanum.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.20 hefst útsending frá leik KR og Vals í Bónus deild karla í körfubolta.

Klukkan 21.05 hefst Bónus Körfuboltakvöld þar sem öll sautjánda umferð Bónus deildar karla verður gerð upp.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 18.50 hefst útsending frá leik ÍR og Njarðvíkur í Bónus deild karla í körfubolta.

Vodafone Sport

Klukkan 16.55 hefst útsending frá leik Al Hilal og Al Riyadh í sádi-arabíska fótboltanum.

Klukkn 19.55 hefst útsending frá leik QPR og Derby County í ensku b-deildinni í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×