Enski boltinn

Nýja tæknin notuð alls staðar nema hjá liði Stefáns Teits

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stefán Teitur Þórðarson og félagar í Preston North End eru komnir í sextán liða úrslit enska bikarsins en þar verður ekki notuð sama tækni og í hinum leikjum sextán liða úrslitanna.
Stefán Teitur Þórðarson og félagar í Preston North End eru komnir í sextán liða úrslit enska bikarsins en þar verður ekki notuð sama tækni og í hinum leikjum sextán liða úrslitanna. Getty/Bradley Collyer

Enska knattspyrnusambandið ætla að prófa hálfsjálfvirka rangstöðutækni í leikjum sextán liða úrslitum enska bikarsins.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi tækni verður notuð formlega í enska boltanum og markmiðið með henni er að auka hraða og nákvæmni við mat á rangstöðu leikmanna í leikjum.

Ef tilraunin heppnast vel þá verður hún einnig tekin í notkun í ensku úrvalsdeildinni í framhaldinu. Sky Sports segir frá.

Það eru átta leikir í þessari umferð bikarsins en það verða þó bara sjö þeirra sem hafa þessa tækni.

Stefán Teitur Þórðarson og félagar í Preston North End fá Burnley í heimsókn en verða að sætta sig við rangstöðudóma upp á gamla mátann.

Áhorfendur heima í stofu fá líka grafískar teikningar af rangstöðudómum og þar kemur í ljós hvaða líkamshlutar sóknarmannsins voru fyrir innan. Fótboltaáhugafólk kannast við þessa tækni frá leikjum í Meistaradeildinni og á síðasta Evrópumóti.

Það átti að taka þetta upp eftir landsleikjahléið í október að nóvember en því seinkaði. Nú á að prófa þetta í bikarnum og sjá hvernig gengur.

Myndbandsdómgæsla verður í öllum leikjunum átta þar á meðal hjá Stefáni Teiti og félögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×