Viðskipti innlent

Fé­lags­mið­stöð, Hitt húsið, FSU og Heilsu­stofnun NLFÍ stofnanir ársins

Lovísa Arnardóttir skrifar
Starfsfólk sem tóku á móti viðurkenningunni Fyrirmyndarstofnun ársins 2024 í flokki borg og bær
Starfsfólk sem tóku á móti viðurkenningunni Fyrirmyndarstofnun ársins 2024 í flokki borg og bær Mynd/BIG

Sameyki tilkynnti í dag um val sitt á stofnunum ársins. Þrjár stofnanir voru valdar hjá borg og bæjum. Það eru Félagsmiðstöðin Sigyn, Leikskólinn Lyngheimar og Hitt húsið. Hjá ríki voru einnig þrjár stofnanir valdar sem stofnanir ársins. Það eru Kvikmyndasafn Íslands, Þjóðskrá Íslands og Fjölbrautarskóli Suðurnesja. Þá fékk Heilsustofnun NLFÍ einnig verðlaun sem stofnun ársins í flokki sjálfseignarstofnana og fyrirtækja.

Í tilkynningu frá Sameyki kemur jafnframt fram að hástökkvari ársins í könnun um stofnun ársins séu íbúðakjarninn Rökkvaborg hjá borg og bæjum og menningar- og viðskiptaráðuneytið hjá ríkinu.

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu tilkynnti um valið við hátíðlega athöfn fyrr í dag. Titlana Stofnun ársins 2024 hljóta þær stofnanir og starfsstaðir sem þykja skara fram úr á sviði mannauðsmála að mati starfsfólks.

Í ár tóku rúmlega 17.000 manns þátt í könnuninni sem var framkvæmd í október og nóvember 2024. Reykjavíkurborg er þátttakandi í könnuninni með allt sitt starfsfólk í þriðja sinn en allt starfsfólk hjá ríkinu hefur tekið þátt síðan 2011.

Starfsfólk sem tóku á móti viðurkenningunni Fyrirmyndarstofnun ársins 2024 í flokki ríkisstofnana.Mynd/BIG

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana og vinnustaða, en hún nær til um 35.000 manns sem starfa á opinberum vinnumarkaði. Niðurstöður könnunarinnar veita bæði mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir.

Í tilkynningu frá Sameyki segir að tilgangurinn með valinu sé að taka eftir og veita þeim vinnustöðum viðurkenningar sem náð hafi framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að frekari umbótum í stjórnun og starfsumhverfi vinnustaðanna. Að lokum veitir könnunin aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.

Niðurstöðurnar voru kynntar að loknu málþingi um mannauðsmál og var yfirskrift þess Jákvæð vinnustaðamenning. Fyrirlesarar á málþinginu voru: Auðunn Gunnar Eiríksson, stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafi hjá Gallup, Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir og Kristrún Anna Konráðsdóttir, leiðtoga- og teymisþjálfari, Tómas Bjarnason, doktor í félagsfræði, og Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur. Málþingsstjóri var Sirrý Arnardóttir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×