Viðskipti innlent

Bein út­sending: Frum­kvöðlar keppast um Gulleggið

Boði Logason skrifar
Allir keppendurnir sem keppa um Gulleggið í ár.
Allir keppendurnir sem keppa um Gulleggið í ár. Gulleggið

Í dag fer fram lokakeppni Gulleggsins 2025, stærstu frumkvöðlakeppni landsins, þar sem nýstárlegar viðskiptahugmyndir verða kynntar fyrir dómnefnd og áhorfendum. Keppnin fer fram í Grósku og er hægt að fylgjast með henni í beinu streymi hér á Vísi.

Keppnin hefur verið haldin árlega frá árinu 2008 en í henni keppa tíu teymi um bestu hugmyndina. Að lokum munu dómnefnd og áhorfendur velja vinningshafa í fjórum flokkum.

Í verðlaun eru tvær milljónir króna fyrir fyrsta sætið, ein milljón króna fyrir annað sætið og hálf milljón króna fyrir þriðja sætið. Svo verða sérstök verðlaun veitt fyrir vinsælasta teymið og má kjósa um það hér.

Hér má sjá þau tíu teymi sem bítast um Gulleggið í ár:

VitalSync

Gústav Arnar Magnússon og Kristján Örn Aðalbjörnsson

Markmið VitalSync er að lengja sjálfstæða búsetu aldraða.


Hvað nú?

Erna Niluka Njálsdóttir og Guðrún Heimisdóttir

Hvað nú? einfaldar syrgjendum úrlausn hinna fjölmörgu verkefna sem fylgja andláti ástvinar með því að veita upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð í ferlinu sem tekur við.


Coliva

Elísabet Reynisdóttir og Eyþór Arnar Ingvarsson

Coliva eru kollagen munnpúðar.


SamFam

Brynja Bjarnadóttir og Kristín Hildur Ragnarsdóttir

SamFam er fyrsta val foreldra þegar þau leita að ráðum eða upplýsingum.


VITI

Júlía Sóley Gísladóttir, Fehima Líf Purisevic, Ingibjörg Sigurðardóttir og Katla Rut Robertsdóttir Kluvers

Viti er leikjaforrit sem hjálpar notendum að fylgjast með hugrænni heilsu í gegnum skemmtilega og örvandi leiki.


SamVís

Birgir Bragi Gunnþórsson, Einir Sturla Arinbjarnarson, Haukur Ingi Sigrúnar Jónsson og Jóhann Tómas Portal.

SamVís er framtíð vísindalegrar gagnasöfnunar, þar sem hefðbundnar leitarvélar kveðja bransann og víkja fyrir öflugri gervigreindarlausn sem finnur, greinir og tengir þekkingu á áður óþekktan hátt.


Planda

Brynja Rún Sævarsdóttir, Anna Lilja Sigurðardóttir, Rakel Hrönn Sveinsdóttir og Björk Gunnarsdóttir

Planda er byltingarkenndur samfélagsmiðill; minni skjátími -fleiri gæðastundir.


Pilot bloks

Davíð James R Berman, Þór Fjalar Hallgrímsson, Kristinn Roach Gunnarsson og Wioleta Zelek

Pilot bloks er stýrikerfi fyrir gatnalýsingu byggt á opnum hugbúnaði.


SagaReg

Guðjón Ásmundsson og Ómar Ingi Halldórsson

Markmið Saga Reg er að einfalda lyfjaskráningar.


Huddle-Hop

Anoop Ajaya Kumar Nair, Moses Osabutey og Ahmad Iftikhar Khan

HuddleHop makes travel in Iceland smarter, cheaper, and greener.


Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem haldin er í upphafi hvers árs og haldin hefur verið af KLAK – Icelandic Startups síðan 2008. Keppnin er opin öllum, jafnt hugmyndasmiðum og áhugafólki um nýsköpun sem vill láta að sér kveða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×