Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að í fyrramálið verði austlæg átt, skýjað með köflum og dálítil væta við suðausturströndina. Síðdegis á morgun gangi skil yfir landið og gera megi ráð fyrir rigningu um tíma í flestum landshlutum. Milt verði í veðri.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á morgun:
Austan 8-15, skýjað með köflum og rigning suðaustantil, en víða rigning með köflum síðdegis.
Hiti 3 til 10 stig.
Á fimmtudag:
Austlæg átt 5-13 m/s og rigning með köflum. Hiti 0 til 9 stig, mildast syðst.
Á föstudag:
Austan 5-13 og væta með köflum, en lengst af þurrt norðanlands. Norðlægari um kvöldið og víða rigning eða slydda. Kólnar í veðri.
Á laugardag:
Norðvestan 8-13 og snjókoma eða slydda fyrir norðan, frost 0 til 6 stig. Hægari sunnan heiða og dálítil væta með köflum, hiti 0 til 5 stig.
Á sunnudag:
Norðan 8-13 og slydda eða rigning, en úrkomulítið vestanlands. Hiti breytist lítið.
Á mánudag:
Norðvestlæg átt og dálítil él fyrir norðan, en bjart með köflum sunnanlands. Frost 0 til 6 stig.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt með éljum, en léttir til norðaustanlands og herðir á frosti.