Skoðun

Frelsið er yndis­legt þegar það hentar

Jens Garðar Helgason skrifar

Evrópusambandinu virðist vera ekkert óviðkomandi í okkar daglega lífi. Einfaldlega ekki neitt. Reglufargan þess teygir anga sína víða í samfélagið, allt ofan í smæstu atriði eins og hvort þegnum þessa lands sé treyst fyrir því að skrúfa tappann á drykkjarföngum sínum alla leið af eða ekki.

Þingheimur tók fyrir þetta merkilega mál í vikunni þar sem stjórnarflokkarnir hreinlega skildu ekki að stjórnarandstaðan skildi dirfast til að kveða sér hljóðs og reyna að halda uppi upplýstri umræðu um báknið í Brussel sem stendur til að gera okkur hluta að.

Tökum þetta litla mál vikunnar út fyrir sviga. Týnum okkur ekki í töppunum. En þetta er algjör birtingarmynd þess hversu langt við þingmenn ætlum að ganga í því að skipta okkur að daglegu lífi landsmanna, hversu langt við ætlum að ganga í að setja á svona dellulög til þess eins að auka kostnað og gera líf þeirra sem hér búa flóknara.

Stærra mál er kannski blessaður iPhone-síminn, sem þú lesandi góður ert mögulega að lesa þessa grein í. Samsung-menn og aðra bið ég afsökunar. Staðan er einfaldlega sú að kaupi tveir aðilar sér sitthvorn iPhone-inn í Evrópu annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar er ekki að fullu um sama símann að ræða.

Í evrópsku útgáfuna vantar gervigreindarforrit og hvers vegna er það? Það er vegna þess að Evrópusambandið er búið að setja tilskipanir og reglugerðir sem útiloka það. Embættismenn og skriffinnskukerfi ESB virðist hreinlega ætla að setja á okkur lög um allt á milli himins og jarðar.

Þetta er einfaldlega spurning um frelsi einstaklingsins. Þess vegna saknaði ég þingmanna Viðreisnar mikið í þessari umræðu í vikunni og reyndar líka í öðru frelsismáli um ráðstöfun útvarpsgjaldsins. Flokkurinn sem er svo duglegur að tala um frelsið í kosningabaráttu sést varla nú þegar slík mál eru rædd í þingsal.

En, vitaskuld sýni ég vinum mínum í Viðreisn fullan skilning. Þau eru í reipitogi við sig sjálf að reyna að halda á lofti fána frelsisins á sama tíma og stefnan er sett í Evrópusambandið. Stofnunina sem treystir okkur ekki fyrir flöskutöppum eða fullmótuðum símum.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sam­úð

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar

Sjá meira


×