Lífið

Vilja að Ís­landi verði vísað úr keppni ef ekki er fallist á kröfur þeirra

Jón Þór Stefánsson skrifar
Væb bar sigur úr býtum í Söngvakeppni sjónvarpsins síðastliðið föstudagskvöld.
Væb bar sigur úr býtum í Söngvakeppni sjónvarpsins síðastliðið föstudagskvöld. Vísir/Hulda Margrét

Frétt ísraelska dagblaðsins Israel Hayom hefst á eftirfarandi orðum: „Ísrael – Ísland, er stríð í uppsiglingu?“

Frétt ísrelska miðilsins fjallar um framlag Íslands í Eurovision, Róa, sem er eftir Inga Bauer, Væb-bræður og Gunnar Björn Gunnarsson, en Væbararnir flytja lagið. Áður hefur verið greint frá því að lagið þykist líkjast ísraelska slagaranum Hatunat Hashana. Lagahöfundur ísraelska lagsins, Ofir Cohen, segist ætla að senda viðvörunarbréf á næstu dögum vegna málsins, áður en hann grípi til annarra aðgerða gegn Væb-bræðrum og Rúv.

„Fyrst og fremst viljum við að þeir leysi úr þessu,“ hefur Israel Hayom eftir Cohen.

„Við gefum þeim tvo valmöguleika: Annars vegar komumst við að viðeigandi samkomulagi, eða þeir felli lagið úr keppni.“

Með þessu „viðeigandi samkomulagi“ á Cohen við að honum verði greiddar skaðabætur, eða hann skrifaður fyrir þeim hluta lagsins sem hann vill meina að hann hafi samið, en það mun vera viðlagið.

„Ef Íslendingarnir fallast ekki á kröfur okkar munum við fara fram á að Samband evrópskra sjónvarpsstöðva fjarlægi lagið úr keppninni. Það er ómögulegt að taka þátt í keppninni með lag sem er að hluta til ekki frumlegt.“

Fjallað var um meintan lagastuld í íslenskum fjölmiðlum í lok janúar. Væb-bræður sögðust þá í samtali við Vísi gáttaðir vegna málsins.

„Við höfðum ekki hugmynd um það hvaða lag þetta er, geturðu ímyndað þér okkur, tvítugu guttana að hlusta á ísraelska popptónlist?“ sagði Hálfdán Helgi Matthíasson, annar Væbarinn.

Cohen segir að Íslendingar geti auðveldlega nálgast popptónlist héðan og þaðan úr heiminum í gegnum forrit eins og Spotify. „Um leið og lagið varð vinsælt í Ísrael sem fólk dansar við í hverju einasta brúðkaupi birtist það á mörgum topplistum. Það ætti því ekki að vera vandamál að finna það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.