Skoðun

Lukka Sjálf­stæðis­flokksins

Inga María Hlíðar Thorsteinson skrifar

„Mér fannst hann alltaf vera í röngum flokki. En það þarf að vera gott fólk í öllum flokkum. Líka í Sjálfstæðisflokknum. Og þá rann það upp fyrir mér að hann væri akkúrat í réttum flokki.“

Þetta sagði borgarfulltrúi Pírata við mig í erfidrykkju Egils Þórs, eiginmanns míns heitins, fyrr á þessu ári. Mér þótti afar vænt um þessi orð og þau voru áhrifarík, þar sem oft hefur verið hvað lengst á milli þessara tveggja flokka hvað málefni varðar, og átök á milli þessara flokka hafa ætíð verið mikil. Egill var grjótharður Sjálfstæðismaður alla tíð en með óvenjulegan bakgrunn. Hann var ódæmigerður Sjálfstæðismaður, en mikill fengur fyrir flokkinn.

En hvað fær manneskju til að ná svona vel til fólks með jafn ólíkar skoðanir og lífsviðhorf og hún sjálf?

Einlægur áhugi á fólki

Það sem skiptir máli svo að fólki finnist það tilheyra, vera hluti af einhverju, er að því sé sýndur einlægur áhugi á lífi þess og persónu. Dómharka og eigin viðhorf eru lögð til hliðar í samtali en í staðinn er viðmælendum sýnd virðing og áhugi. Þannig upplifir fólk ánægju með sjálft sig eins og það er. Það fær samþykki fyrir því að vera eins og það er og þannig komast gildi viðkomandi raunverulega til skila, þar sem viðkomandi er ekki að reyna að þóknast viðmælanda sínum.

Skilningur og samkennd

Í samtalinu er ekki hlustað og gefin endurgjöf heldur er hlustað af áhuga og sýnd samkennd. Endurgjöf eða ráðleggingar eru gefnar, ef óskað er eftir því.

Vilji til góðra verka

Þegar ágreiningur kemur upp er reynt að finna flöt á máli sem allir geta sætt sig við. Stundum þarf að taka af skarið með erfiðar ákvarðanir er varða lög, réttlæti og/eða almannahag.

Ég er ekki svo ólík Agli mínum að því leyti að fólki finnst ég gjarnan vera í „röngum flokki“. Ég deili þó grunngildum með flokknum og trúi á að stefna hans muni leiða þjóðina til meiri farsældar. Ég er ekki hinn dæmigerði Sjálfstæðismaður en í flokknum þurfa líka að vera ódæmigerðir sjálfstæðismenn. Flokkurinn þarf að halda áfram að taka vel á móti öllu því fólki sem hefur trú á stefnunni, sama hvaðan það kemur.

Lukka flokksins

Í framboði til formanns Sjálfstæðisflokksins eru nú tvær afar frambærilega konur. Báðar eru þær virkilega duglegar, ákveðnar og klárar konur. Þær hafa báðar sína kosti og búa báðar yfir miklum leiðtogahæfileikum. En nú stendur flokkurinn á krossgötum. Landsfundarfulltrúar þurfa að velja sér formann sem þykir líklegastur til að ná að sameina flokkinn aftur. Stuðla að virkni innan flokksins og samvinnu þeirra sem tilheyra grasrótinni. Bjóða hið ódæmigerða Sjálfstæðisfólk aftur velkomið í starfið, því annars heldur flokkurinn bara áfram að minnka.

Guðrún Hafsteinsdóttir hefur góða reynslu af því að sameina fólk úr ólíkum áttum. Hún býr yfir þessum mannkostum sem ég taldi upp hér að ofan sem eru afar verðmætir í samskiptum sem eru jú grunnurinn að góðum árangri. Hún kemur inn í átök sem gerjast hafa í flokknum í áratugi, án þess að tilheyra öðrum hvorum arminum. Ég tel að slíkur aðili sé bjartasta von flokksins til að sameinast á ný.

Höfundur er ljósmóðir og f.v. varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Leið­togi nýrra tíma

Auður Kjartansdóttir,Bjarnveig Guðbrandsdóttir,Brynhildur Einarsdóttir,Guðrún Ingadóttir,G. Sirrý Ágústsdóttir,Hafdís Gunnarsdóttir,Jónas Kári Eiríksson,Júlíus Guðni Antonsson,Ragnhildur Eva Jónsdóttir,Róbert Smári Gunnarsson skrifar

Sjá meira


×