Innlent

Sögu­legur samningur og Flokkur fólksins á niður­leið

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Erla Björg Gunnarsdóttir ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar les fréttir í kvöld.
Erla Björg Gunnarsdóttir ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar les fréttir í kvöld. Vilhelm

Kjarasamningurinn sem Kennarasamband Íslands, ríki og sveitarfélög undirrituðu í gær tryggir um tólf þúsund félagsmönnum launahækkanir upp á 20 til 25 prósent, kjósi þeir að samþykkja hann í atkvæðagreiðslu eftir helgi. Við kynnum okkur sögulegan kjarasamning í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við formann Sambands íslenskra sveitarfélaga í beinni.

Þá greinum við einnig frá glænýrri könnun Maskínu á fylgi flokkanna sem felur í sér nokkur tíðindi og heyrum í lögmanni mótmælenda sem standa í málarekstri við ríkið vegna framgöngu lögreglu. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu mun horfa aftur á efni úr búkmyndavélum vegna ummæla lögregluþjóna sem fóru fram hjá nefndinni.

Við ræðum einnig við forstjóra Persónuverndar um hætturnar sem fylgja því að deila staðsetningu sinni með öðrum, skoðum nýja álmu í flugstöðinni í Keflavík og verðum í beinni frá Bláfjöllum þar sem snjónum er fagnað ákaft.

Í Sportpakkanum verður rætt við Íslandsmeistara í langstökki sem segir tillögur um breytingar í greininni fela í sér vanvirðingu og í Íslandi í dag hittir Sindri Sindrason þá Steinda og Audda sem gera ráð fyrir að gera allt vitlaust með nýju þáttaröðinni sinni.

Þetta og margt fleira í opinni dagskrá á samtengdum rásum Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×