Innlent

Ó­boðin ung­menni hótuðu börnum á skóla­tíma við Seljaskóla

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Seljaskóli er fyrir börn á aldrinum sex til sextán ára í efra Breiðholti.
Seljaskóli er fyrir börn á aldrinum sex til sextán ára í efra Breiðholti. vísir/Vilhelm

Lögregla var kölluð til við Seljaskóla í Reykjavík eftir hádegið vegna barna sem mættu óboðin á skólalóðina og höfðu í hótunum við ellefu til þrettán ára gömul börn á miðstigi skólans. Töldu einhverjir nemendur móta fyrir hníf í buxnastreng óboðnu gestanna.

Þetta kemur fram í tölvupósti sem Jóhanna Héðinsdóttir skólastjóri sendi á foreldra og forráðamenn. Þrjú ungmenni úr öðrum grunnskóla hafi mætt á skólalóðina fyrir hádegi. Þau hafi strax verið beðin um að yfirgefa svæðið

„Starfsfólk og skólastjóri hafði af þeim afskipti og vísaði þeim í burtu. - Líkt og við gerum alltaf. Enginn óviðkomandi á að vera hér í eða við skólann á skólatíma,“ segir í tölvupósti Jóhönnu.

Hótanir um ofbeldi

Stuttu síðar hafi orðið uppnám í hádegisfrímínútum þar sem margir nemendur á miðstigi komu úr frímínútum og sögðu þessi ungmenni hafa haft uppi hótanir við þau um ofbeldi úti á skólalóð.

„Einhverjir nemendur uppástóðu að eitt ungmennið hafi verið með hníf. En enginn gat almennilega staðfest það og síðar í samtölum var það raunar svo að nemendur voru bara vissir um að slíkt væri, eða héldu að þeir hefðu séð móta fyrir hníf í buxnastreng.“

Jóhanna segist strax hafa hringt í lögreglu. Fulltrúar hennar hafi mætt á svæðið, tekið niður upplýsingar og ætlað að svipast um í hverfinu. Á þessum tímapunkti hafi óboðnu ungmennin verið farin á brott.

Ræddi við skólastjórann í hinum skólanum

Þá segist Jóhanna hafa sett sig í samband við skólastjóra í þeim grunnskóla sem talið er að óboðnu ungmennin gangi í.

„Það varð töluvert uppnám hjá nemendum við þetta atvik, sem við skiljum.

Einhverjir nemendur urðu alls ekki varir við neitt,“ segir Jóhanna. Mikilvægt sé að halda foreldrum upplýst um atvik dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×