Lífið

Bitin Bachelor stjarna

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sean Lowe var hætt kominn í tvígang.
Sean Lowe var hætt kominn í tvígang. Adam Bettcher/Getty

Bachelor stjarnan Sean Lowe er á batavegi eftir að hundur hans réðist á hann og beit hann tvisvar á einum sólarhringi illilega á heimili hans fyrr í þessum mánuði. Piparsveinninn fyrrverandi hafði nýlega ættleitt hundinn og segir hann ljóst að eitthvað mikið hafi gengið á í lífi dýrsins.

Bandaríska sjónvarpsstöðin ABC fjallaði um árás hundsins. Myndefni úr líkamsmyndavélum lögreglumanna á vettvangi sýna hvernig Lowe heldur hundi sínum niðri og hvernig þeir þurfa að koma honum til aðstoðar. Hundurinn ber nafnið Moose og er af boxer tegund.

Lowe var aðalmaðurinn í sautjándu seríu af The Bachelor sem kom út árið 2013. Hann útskýrir fyrir ABC sjónvarpsstöðinni að hann hafi verið að grilla fyrir utan heimili sitt rétt fyrir árás hundsins. Reykurinn hafi borist inn á heimilið og reykskynjari hafi farið af stað með þeim afleiðingum að hundurinn hafi tryllst.

Sean sagði alla sólarsöguna á Instagram ásamt eiginkonunni og Bachelor sigurvegaranum Catherine Giudici.

Hann hafi ráðist á hann og bitið hann í höndina og í fótinn. „Á þessum tímapunkti finn ég hann einfaldlega rífa handlegginn minn í sig,“ segir Lowe. Honum hafi blætt mikið en þarna var hann heima með vinum sínum og fjölskyldan víðsfjarri. Þeim hafi tekist að fanga hundinn og læsa hann inni í bakgarðinum.

Á meðan leitaði Lowe sér aðstoðar á bráðamótttöku. Innan við sólarhring síðar réðst hundurinn aftur á piparsveinninn fyrrverandi, nú þar sem hann stóð fyrir framan hús sitt. Það var þá sem Lowe skutlaði sér á hundinn og hélt honum niðri þar til viðbragðsaðilar mættu. 

Lowe hlaut í þetta skiptið djúpan skurð á öðrum handlegg en sauma þurfti fyrir sárin í bæði skiptin. Hann segir að fjölskyldan vilji ekki lóga hundinum þó ljóst sé að hún geti ekki haldið honum lengur á heimili sínu.

Sjá má aðkomu lögreglumanna að Lowe í myndbandinu hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.