Bíó og sjónvarp

Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes

Atli Ísleifsson skrifar
Paul Mescal (Paul), Joseph Quinn (George), Barry Keoghan (Ringo) og Harris Dickinson (John) á sviðinu á CinemaCon í Caesars Palace í Las Vegas í gær.
Paul Mescal (Paul), Joseph Quinn (George), Barry Keoghan (Ringo) og Harris Dickinson (John) á sviðinu á CinemaCon í Caesars Palace í Las Vegas í gær. AP

Fjórir vel þekktir kvikmyndaleikarar hafa verið ráðnir til að túlka sjálfa Bítlana – þá Paul McCartney, John Lennon, George Harrison og Ringo Starr – í nýjum kvikmyndum bandaríska leikstjórans Sam Mendes sem áætlað er að verði sýnd 2028.

Greint var frá þessu á kvikmyndamessu í Las Vegas í Bandaríkjunum í gær þar sem leikararnir mættu á svið ásamt leikstjóranum Mendes. Til stendur að gera fjórar kvikmyndir, þar sem kastljósinu verður beint að einum Bítli í hverri mynd.

Englendingurinn Harris Dickinson, sem þekktur er úr myndinni Babygirl, mun túlka John Lennon og Írinn Paul Mescal, sem er meðal annars þekktur úr Gladiator II, mun fara með hlutverk Paul McCartney.

Þá mun Írinn Barry Keoghan, sem þekktur er fyrir hlutverk sín í The Banshees of Inisherin, Dunkirk og Saltburn, fara með hlutverk trommarans Ringo Starr, og Englendingurinn Joseph Quinn túlka George Harrison. Quinn vakti síðast athygli fyrir hlutverk sitt sem keisarinn Geta í Gladiator II.

Sam Mendes í Vegas í gær.AP

Reiknað er með að þættirnir verði sýndir árið 2028.

Leikstjórinn Sam Mendes er þekktur fyrir að hafa leikstýrt myndum á borð við American Beauty (1999), Road to Perdition (2002), Jarhead (2005), Revolutionary Road (2008), Skyfall (2012), Spectre (2015) og stríðsmyndinni 1917 (2019).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.