Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Agnar Már Másson skrifar 17. september 2026 16:40 Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, greidi frá þessu í ræðu í neðri deild þingsins. AP/Omar Havana Donalds Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir gögn frá pólsku leyniþjónustunnar sýna að Rússar hafi áætlað fjölþáttaárásir gegn löndum sem styðja við Úkraínu, þar á meðal Póllandi. Rússland hyggist láta fyrirhugaða árás líta út fyrir að vera óhapp. „
Samkvæmt upplýsingum leyniþjónustunnar felur áætlun Rússa í sér fjölþáttaárásir með drónum og flugskeytum gegn löndum sem styðja Úkraínu, þar á meðal Póllandi,“ sagði Tusk í ræðu í neðri deild pólska þjóðþingsins í dag, að því er pólski miðillinn Onet greinir frá. Sagði hann Rússa hyggjast í kjölfarið láta sem um óhapp væri að ræða í von um að „lama – eða í það minnsta draga úr – ákveðni NATO til þess að virkja viðhlítandi ákvæði“ í NATO-samningnum. Vísar hann þar líklega til 5. greinar NATO-sáttmálans sem kveður á um það að vopnuð árás á eitt aðildarríki teljist árás á þau öll. „Það er raunveruleg hætta á því,“ sagði Tusk, „að drónum eða annars konar flygildum yrði skotið inn á yfirráðasvæði NATO-ríkja úr austri og gætu jafnvel valdið skaða, og opinbera skýringin yrði sú að um slys væri að ræða og að engin ástæða væri fyrir NATO að bregðast við.“ Hann sagði markmiðið vera að grafa undan samheldni NATO-ríkja „og umfram allt að sannfæra […] aðildarríkin um að 5. greinin sé meira fræðileg en hagnýt; það er að segja, sú forsenda að enginn vilji deyja fyrir Lettland eða Litháen, í ljósi þess að við erum að fást við einstaka atvik frekar en stríðsyfirlýsingu,“ bætti hann við. Hann sagðist búast við því að Rússar myndu nota „endurtekin atvik“ í von um að mála upp „æ skýrari mynd af ráðaleysi NATO“ til að bregðast við á sameinaðan hátt.
Pólland NATO Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Sjá meira