Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Smári Jökull Jónsson skrifar 5. október 2026 08:03 Við undirritun samkomulags um samstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í kjölfar kosninganna í maí. Facebooksíða Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ Í yfirlýsingu Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ sem send var út í gær segir að flokkurinn hafi slitið meirihlutasamstarfi sínu við Sjálfstæðisflokkinn vegna trúnaðarbrests sem ekki hafi verið hægt að líta framhjá.
Meirihlutinn sprakk í gær en engar nánari skýringar hafa fengist á því hvers vegna samstarfi flokkanna lauk. Bæjarfulltrúum barst póstur frá forseta bæjarstjórnar, Hauki Andreassyni, um klukkan 18:00 í gær þar sem tilkynnt var um slitin en hvorki náðist í Hauk né oddvita Samfylkingarinnar í gærkvöldi. Í yfirlýsingu sem birtist á Facebooksíðu Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ í gærkvöldi segir að ákvörðun um slitin hafi verið tekin af aðal- og varamönnum framboðsins í gær. „Hana má rekja til trúnaðarbrests í samstarfinu sem ekki var hægt að líta framhjá. Fulltrúar Samfylkingar og óháðra fara nú yfir stöðu mála með sínu baklandi. Hvort Samfylkingin og óháðir fari í meirihlutasamstarf með öðrum flokki er enn óráðið, en S-listinn hlaut rúm 34 prósent atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum í vor og þrjá bæjarfulltrúa kjörna.“ Bæjarfulltrúar Suðurnesjabæjar.Vísir Samfylkingin var eini flokkurinn sem fékk þrjá fulltrúa kjörna í kosningunum í maí en tveir aðrir meirihlutar koma nú til greina. Annars vegar gæti Samfylkingin myndað fimm manna meirihluta með tveimur fulltrúum Framsóknar, eða Sjálfstæðisflokkurinn myndað sex manna meirihluta ásamt Framsókn og tveimur fulltrúum Miðflokksins. Á Facebooksíðu Sjálfstæðisfélags Suðurnesjabæjar birtist stutt yfirlýsing í gær þar um frestun fundar sem var á dagskrá í gær, vegna atburðarásar sem átti sér stað.
Suðurnesjabær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira