Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 5. október 2026 15:20 Gjafakort eða gjafabréf eru vinsælar tækifærisgjafir, stundum fyrir umtalsverðar upphæðir. Þau geta verið þægileg þegar erfitt er að vita hvað fólk langar í. Gjafakort gefa einnig viðtakandanum frelsi til að velja. Margir kannast hins vegar eflaust við að hafa gleymt gjafakorti ofan í skúffu eða veski, eða að kortið hafi týnst tímabundið og finnist kannski þegar gildistíminn er liðinn. Það vekur auðvitað upp spurningar um hvert fjármunirnir fara. Á bak við hvert gjafakort eru raunverulegir fjármunir. Greitt hefur verið fyrirfram fyrir vöru eða þjónustu sem afhenda á síðar. Sé það aldrei notað hefur fyrirtækið fengið greiðslu án þess að afhenda nokkuð á móti. Þetta er umhugsunarvert. Ekki alveg einfalt Ég hef verið að skoða hvort nauðsynlegt sé að leggja fram frumvarp um réttindi eigenda gjafakorta. Upphaflega var hugmyndin að setja skýran lágmarksgildistíma á gjafakort, til dæmis fjögur ár. Eftir að hafa skoðað málið betur verður sú spurning áleitnari hvers vegna gjafakort sem greitt hefur verið fyrir ætti yfirhöfuð að renna út. Rökin fyrir ótímabundnum gildistíma eru sterk. Fyrirtækið hefur fengið fjármunina en ekki látið vöru eða þjónustu af hendi. Hvers vegna ætti réttur handhafa kortsins þá að falla niður? En málið er ekki alveg svo einfalt. Ótímabundinn gildistími gæti þýtt að fyrirtæki þyrftu að halda utan um gamlar skuldbindingar árum eða áratugum saman. Skoða þyrfti hvernig bókfæra ætti slíkar skuldbindingar í rekstri fyrirtækja og hvernig þær samræmdust almennum reglum um fyrningu. Fyrirtæki geta líka hætt starfsemi, skipt um eigendur eða breytt starfsemi sinni. Stundum kunna einnig að vera málefnalegar ástæður fyrir takmörkuðum gildistíma. Hvar á að draga mörkin? Við vinnslu málsins hef ég meðal annars leitað eftir upplýsingum og sjónarmiðum hjá Neytendasamtökunum. Samtökin benda á að allur gangur sé á gildistíma gjafakorta. Sum fyrirtæki setji engan gildistíma og annars staðar sé gildistíminn mjög skammur. Miklu skipti að neytandinn sé upplýstur við kaupin um hvaða skilmálar gildi. Ég tel rétt að skoða þessi mál mjög vel með hag og réttindi neytenda að leiðarljósi. Reglurnar þurfa að vera skýrar og sanngjarnar. Bæði þeir sem kaupa gjafakort og þeir sem fá þau að gjöf þurfa að vera vel upplýstir um hvað þeir eru með í höndunum og hverjir skilmálarnir eru. Gjafakort á að vera gleðigjöf, ekki gjöf sem hverfur vegna smáa letursins. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Neytendur Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Gjafakort eða gjafabréf eru vinsælar tækifærisgjafir, stundum fyrir umtalsverðar upphæðir. Þau geta verið þægileg þegar erfitt er að vita hvað fólk langar í. Gjafakort gefa einnig viðtakandanum frelsi til að velja. Margir kannast hins vegar eflaust við að hafa gleymt gjafakorti ofan í skúffu eða veski, eða að kortið hafi týnst tímabundið og finnist kannski þegar gildistíminn er liðinn. Það vekur auðvitað upp spurningar um hvert fjármunirnir fara. Á bak við hvert gjafakort eru raunverulegir fjármunir. Greitt hefur verið fyrirfram fyrir vöru eða þjónustu sem afhenda á síðar. Sé það aldrei notað hefur fyrirtækið fengið greiðslu án þess að afhenda nokkuð á móti. Þetta er umhugsunarvert. Ekki alveg einfalt Ég hef verið að skoða hvort nauðsynlegt sé að leggja fram frumvarp um réttindi eigenda gjafakorta. Upphaflega var hugmyndin að setja skýran lágmarksgildistíma á gjafakort, til dæmis fjögur ár. Eftir að hafa skoðað málið betur verður sú spurning áleitnari hvers vegna gjafakort sem greitt hefur verið fyrir ætti yfirhöfuð að renna út. Rökin fyrir ótímabundnum gildistíma eru sterk. Fyrirtækið hefur fengið fjármunina en ekki látið vöru eða þjónustu af hendi. Hvers vegna ætti réttur handhafa kortsins þá að falla niður? En málið er ekki alveg svo einfalt. Ótímabundinn gildistími gæti þýtt að fyrirtæki þyrftu að halda utan um gamlar skuldbindingar árum eða áratugum saman. Skoða þyrfti hvernig bókfæra ætti slíkar skuldbindingar í rekstri fyrirtækja og hvernig þær samræmdust almennum reglum um fyrningu. Fyrirtæki geta líka hætt starfsemi, skipt um eigendur eða breytt starfsemi sinni. Stundum kunna einnig að vera málefnalegar ástæður fyrir takmörkuðum gildistíma. Hvar á að draga mörkin? Við vinnslu málsins hef ég meðal annars leitað eftir upplýsingum og sjónarmiðum hjá Neytendasamtökunum. Samtökin benda á að allur gangur sé á gildistíma gjafakorta. Sum fyrirtæki setji engan gildistíma og annars staðar sé gildistíminn mjög skammur. Miklu skipti að neytandinn sé upplýstur við kaupin um hvaða skilmálar gildi. Ég tel rétt að skoða þessi mál mjög vel með hag og réttindi neytenda að leiðarljósi. Reglurnar þurfa að vera skýrar og sanngjarnar. Bæði þeir sem kaupa gjafakort og þeir sem fá þau að gjöf þurfa að vera vel upplýstir um hvað þeir eru með í höndunum og hverjir skilmálarnir eru. Gjafakort á að vera gleðigjöf, ekki gjöf sem hverfur vegna smáa letursins. Höfundur er þingkona Flokks fólksins.
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar