Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Bjarki Sigurðsson skrifar 6. október 2026 11:39 Brynhildur Bolladóttir er formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl. Vísir Samtök um bíllausan lífstíl leggjast á móti áformum meirihlutans og Miðflokks í umhverfis- og skipulagsráði um að bæta við hægribeygjuframhjáhlaupi þegar ekið er af Bæjarhálsi yfir á Höfðabakka til norðurs.
Í gær greindi fréttastofa frá því að Miðflokkurinn hefði gengið til liðs við meirihlutann varðandi tillögu um breytingar á gatnamótum Bæjarháls og Höfðabakka. Umdeildar breytingar voru gerðar á gatnamótunum í fyrrasumar þegar tvö hægribeygjuframhjáhlaup voru fjarlægð og akreinaskipan breytt. Tillagan snýr að því að lengja akreinar, sem er tillaga úr skýrslu verkfræðistofunnar Cowi um gatnamótin. Hins vegar vill meirihlutinn, þvert á það sem kemur fram í skýrslunni, bæta við einu framhjáhlaupi. Brynhildur Bolladóttir, formaður Samtaka um bíllausan lífstíl, gagnrýnir það að bæta við framhjáhlaupinu þvert á ráðleggingar í skýrslunni. „Það að koma vasanum inn aftur mun hafa mjög slæm áhrif á öryggi gangandi og hjólandi, en ekki síst á öryggi þeirra sem keyra. Aftanákeyrslur eru algengar í svona beygjuvösum. Þetta er öryggismál fyrir okkur öll,“ segir Brynhildur. „Bílstjórarnir eru alltaf að líta í hina áttina þannig að þeir taka oftast ekki eftir öðrum. Maður þarf að ná augnsambandi við bílstjórana til að vita hvort það sé í lagi að maður fari yfir. Það sést líka á því að það er stöðugt verið að keyra aftan á bílana sjálfa. Fólk er ekki að fylgjast með því sem er að gerast beint fyrir framan það.“ Samtökin hafa sent umhverfis- og skipulagsráði bréf þar sem fulltrúar eru hvattir til þess að hætta við að bæta beygjunni við. „Við viljum bara að farið sé eftir faglegu mati sem er sviðsmynd tvö í þessari skýrslu en ekki bæta við óþarfa beygjuvasa,“ segir Brynhildur.
Samgöngumál Samgönguslys Reykjavík Borgarstjórn Skipulagsmál Tengdar fréttir Reykjavík beygir af Það er í lagi að vera ósammála. Pólitíkin væri líka frekar gagnslaus ef að kjörnir fulltrúar skiptust ekki reglulega á skoðunum og deildu um þær. 6. október 2026 09:31 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Sjá meira
Reykjavík beygir af Það er í lagi að vera ósammála. Pólitíkin væri líka frekar gagnslaus ef að kjörnir fulltrúar skiptust ekki reglulega á skoðunum og deildu um þær. 6. október 2026 09:31