Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. október 2026 11:49 Sigvaldi Egill Lárusson er formaður Heimils og skóla, landssamtaka foreldra. Formaður Heimilis og skóla skorar á mennta- og barnamálaráðherra að endurvekja áform um að lengja skólaár grunnskólabarna. Rökfærslur formanns Kennarasambandsins eigi sér enga stoð. Þróun námsins á Íslandi ætti ekki að snúast einungis um kjarabaráttu kennara, sem bitni á námi barnanna. „
Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslenskt menntakerfi. Símafriður, skýrari einkunnagjöf og lenging skólaársins. Við hjá Heimili og skóla, landssamtökum foreldra, fögnuðum þessum aðgerðum,“ segir Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, í aðsendri grein á Vísi. Brátt hafi ráðherrann hins vegar farið að valda vonbrigðum þegar í stað þess að ræða hvernig bæta megi stöðu barna beindist umræðan að því að „gera lítið úr staðreyndum og hreinlega rangfærslum“ að mati Sigvalda. Rökfærslur formannsins ekki réttar Töluvert var fjallað um það í fjölmiðlum þegar tekist var á um lengd skólaársins. Það hófst þegar Inga lagði minnisblað fyrir ríkisstjórnina þar sem sagði að nauðsynlegt væri að gera starfsaðstæður kennara sambærilegri við aðra opinbera starfsmenn. Einnig kom þar fram að kennsludagar í íslenskum grunnskólum væru færri en gengur og gerist í Evrópu. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sagði það ekki rétt og að skólaár barnanna væru 180 dagar. Þar með taldir væru þemadagar og ýmis konar óhefðbundnir kennsludagar. „Formaður Kennarasambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, hélt því fram opinberlega að kennsludagar í íslenskum grunnskólum væru 180 og að það væri sambærilegt á öllum hinum Norðurlöndunum. Hvorugt er rétt,“ segir Sigvaldi. Samkvæmt grunnskólalögum séu dagarnir vissulega 180 talsins en kennsludagarnir einungis 170. Þessir tíu dagar séu til dæmis skólasetning, sem taki almennt tíu til fimmtán mínútur, tveggja klukkustunda langt jólaball, stutt foreldraviðtöl og loks skólaslit. „Allir þessir dagar teljast samt inn í 180 daga skólaársins. Að kalla þá „kennsludaga“ er einfaldlega rangt.“ Sigvaldi vísar síðan í tölfræði frá bæði OECD og Eurydice þar sem kemur fram að skólaárið á Íslandi sé þrjátíu dögum styttra en í Danmörku, tuttugu dögum styttra en í Noregi og átta dögum styttra en í Svíþjóð. „Dönsk börn fá um 40% fleiri kennslustundir en íslensk börn, sem samsvarar um fjórum heilum kennsluárum yfir grunnskólagönguna. Fullyrðing um að þetta sé „sambærilegt á öllum hinum Norðurlöndunum" stenst því enga skoðun,“ segir Sigvaldi. Vegna þessara ummæla hefur Heimili og skóli óskað eftir því að þau verði tekin til skoðunar af stjórn Kennarasambandsins. Vilja þau láta athuga hvort ummælin samræmist siðareglum sambandsins. Kjarabaráttan bitni á nemendum „Skólaþróun á Íslandi á ekki að snúast fyrst og fremst um kjarabaráttu kennara. Hún á að snúast um nemendur, um árangur þeirra og um hvernig við gerum íslenskt menntakerfi betra,“ segir Sigvaldi. Nýjar tillögur ráðherra um að bæta námsárangur barna í kjölfar slæmrar niðurstöðu í PISA-könnuninni vekja upp ugg þar sem ekkert er þar að finna um lengingu skólaársins. „Maður hlýtur að spyrja sig hvort rangfærslurnar og upplýsingaóreiðan, sem haldið var uppi þegar málið kom fyrst fram, hafi orðið til þess að bakkað var með það. Ef svo er, þá hefur kjarabarátta kennara bitnað á börnunum, ekki er lengur hægt að ræða málin út frá staðreyndum, og íslensk börn fá ekki skólaár sem er raunverulega sambærilegt, í lengd, kennsludögum og tíma, við það sem jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum njóta.“ Heimili og skóli skora því á Ingu að endurvekja áformin um að lengja skólaárið.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Sjá meira