Þétta samstarfið í útnorðri Agnar Már Másson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 7. október 2026 18:01 „Vi tænkte at gøre det hele på dansk,“ sagði Kristrún á undir lok fundarins, sem var að öðru leyti haldinn á ensku. Vísir/Rafn Ísland, Færeyjar og Grænland hyggjast efla viðskiptasamstarf sín á milli en leiðtogar vestnorrænu landanna sátu í dag hringborð með fjárfestum á Norður-Atlantshafi. Þetta er í fyrsta sinn sem leiðtogarnir landanna hittast gagngert í einu landanna til að funda.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Johannesen, lögmanns Færeyja, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðdegis í dag. Leiðtogar landanna þriggja hafa átt samráðsfund í dag en á blaðamannafundi greindu þeir frá því að þeir hefðu rætt við viðskiptaleiðtoga í von um að efla viðskipti og samstarf milli landanna. Fyrr um daginn höfðu þau einnig skoðað varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli. „Það eru mörg tækifæri fyrir okkur til þess að vaxa,“ sagði Kristrún á blaðamannafundinum í dag, sem haldinn var á ensku. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, á blaðamannafundinum í dag.Vísir/Rafn Þau fóru þó ekki í smáatriði um það hvernig þessu aukna samstarfi yrði háttað. Þetta er í fyrsta sinn sem ríkisstjórnaroddvitar vestnorrænu landanna hittast gagngert í einu landanna til að eiga samráð um sameiginleg hagsmunamál, að því er fram kom í tilkynningu frá stjórnarráðinu í gær. Beinir sagði þó að þetta yrði aðeins fyrsta skipti af mörgum þar sem leiðtogar landanna þriggja myndu hittast saman. „Ég held að þetta sé upphaf á meira og breiðara samstarfi milli landanna þriggja,“ sagði Færeyingurinn. Beinir Johannesen, lögmaður Færeyja.Vísir/Rafn Jens-Frederik tók undir og kvaðst spenntur fyrir frekara samstarfi. „Ég held að við höfum marga ókannaða möguleika,“ bætti Grænlendingurinn við. Fundurinn er haldinn í framhaldi af miklum hræringum í málefnum Grænlands, þar sem nýlega var samið um nýjan varnarsamning við Bandaríkin í kjölfar hótana Bandaríkjaforseta en auk þess tilkynnti Evrópusambandið nýlega um fjárfestingarpakka fyrir Grænland. Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar.Vísir/Rafn „Ég held að samkomulagið sem við gerðum milli landanna þriggja sé mjög góður samningur fyrir okkur en einnig fyrir NATO og Evrópu,“ sagði Jens-Frederik þegar hann var spurður út í þríhliða samning Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur um varnarmál á Grænlandi. Hann þakkaði Íslendingum fyrir stuðninginn sem Grænland hefur notið undanfarið ár auk þess sem Íslendingar hafa verið fylgjandi því að Grænland fái sinn eigin fulltrúa í Norðurlandaráði. Undir lok fundarins spreytti forsætisráðherrann sig á dönsku. „Vi tænkte at gøre det hele på dansk,“ sagði Kristrún þá og viðstaddir flissuðu.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Færeyjar Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Öryggis- og varnarmál EES-samningurinn Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Sjá meira