Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Kjartan Kjartansson skrifar 8. október 2026 13:50 Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, segir að almannahagsmunir ættu að vera ofar sérhagsmunum í lagasetningu um fjölmiðla. Vísir Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar segir að hafa verði hagsmuni almennings af öflugum fjölmiðlum að leiðarljósi en ekki sérhagsmuni við endurskoðun á fjölmiðlalögum. Kröfur um skráningu fjölmiðla, sem hlaðvarpar vilja ekki undirgangast, hafi verið gerðar til að tryggja að upplýsingar um eignarhald yrðu alltaf aðgengilegar.
Eigendur vinsælla hlaðvarpa hafa um langt skeið gagnrýnt tilraunir Fjölmiðlanefndar til þess að fá þá til þess að skrá þau sem fjölmiðla. Sumir þeirra hafa haldið því fram að þeir þyrftu að hætta starfsemi ef þeim væri gert að skrá sig. Nefndin hefur beitt suma þeirra sektum fyrir að skrá sig ekki. Nokkrir þeirra gengu á fund Loga Einarssonar, menningarmálaráðherra, í gær til þess að þrýsta á hann um að undanskilja hlaðvörp frá skráningarskyldunni. Ráðherrann hefur tekið undir slíkar hugmyndir opinberlega. Ríkisstjórnin hefur boðað breytingar á fjölmiðlalögum á þessu þingi og stendur meðal annars til að endurskoða stjórnsýslueftirlit með fjölmiðlum. Í aðsendri grein á Vísi segir Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, að skráning hlaðvarpa séu hluti af heildarmyndinni í endurskoðun fjölmiðlalaganna. Aðalatriðið sé þó að fjölmiðlar gegni lykilhlutverki í lýðræðisríkjum og því hafi þeir réttindi umfram önnur fyrirtæki og skyldur sömuleiðis. „Við endurskoðun á löggjöf verður fyrst og fremst að hafa að leiðarljósi hagsmuni almennings af öflugum fjölmiðlum, en ekki sérhagsmuni eða hugmyndir einstakra manna af því hvernig best væri að haga lögum með tilliti til þeirra eigin hagsmuna,“ skrifar framkvæmdastjórinn. Ákvæði um gagnsæi sett eftir bankahrun Elfa Ýr líkir nefndinni við bakara sem sé hengdur fyrir smið í umræðunni um skráningu hlaðvarpa sem fjölmiðla. Nefndin þurfi að fara eftir lögum sem geri henni að hafa eftirlit með því að þeim sé fylgt. „Í hnotskurn er þetta afar einfalt. Það kostar ekkert að skrá fjölmiðil. Í skráningu felst sú einfalda skylda að upplýsa um ábyrgðarmann þess efnis sem miðlað er, við hvern er hægt að hafa samband ef kvartað er undan efni á miðlinum og greina frá ritstjórnarstefnu miðilsins. Þá þarf fjölmiðill að upplýsa um eignarhald og yfirráð svo almenningur njóti þeirrar sjálfsögðu vitneskju hvort miðillinn hafi hagsmuni af tiltekinni umfjöllun eða tengsl við tiltekna viðmælendur,“ skrifar Elfa Ýr. Þessi ákvæði hafi verið sett inn í fjölmiðlalög sem voru samþykkt eftir efnahagshrunið. Þverpólitísk nefnd hafi talið brýnt að tryggja gagnsæi eignarhalds fjölmiðla. Skráningarskylda hafið verið lögfest til að tryggja gagnsæi eignarhalds á fjölmiðlum svo almenningur gæti tekið afstöðu til ritstjórnarstefnu og efnis miðlanna út frá eignarhaldi þeirra. „Sú ákvörðun var tekin að gefnu tilefni í ljósi þeirra samfélagslegu og pólitísku átaka sem skóku íslenskt samfélag í upphafi þessarar aldar,“ segir í grein framkvæmdastjórans. Fimmtungur ungs fólks með hlaðvarpsáskrift, eitt prósent að fréttamiðlum Framkvæmdastjórinn vísar í vaxandi áhrif hlaðvarpa á Íslandi. Í könnun sem gerð var fyrir Fjölmiðlanefnd í þessum mánuði hafi komið í ljós að rúm tíu prósent fólks átján ára og eldra greiddi fyrir áskrift að íslensku hlaðvarpi en tæp fjórtán prósent að íslenskum fréttamiðli. Heill fimmtungur fólks á aldrinum 18-29 ára greiddi fyrir íslenskt hlaðvarp en aðeins 1,2 prósent að íslenskum fréttamiðli. „Niðurstöðurnar eru sláandi og sýna hversu hratt fjölmiðlanotkun breytist. Ástæðurnar eru þekktar. Meðal þeirra helstu eru tækniþróun, tilkoma samfélagsmiðla og streymisveitna. Þessu til viðbótar má nefna að Íslendingar hafa vanist því að fá fréttir ókeypis á vefmiðlum. Könnun Maskínu virðist eindregið benda til að hlutdeild hlaðvarpa fari stækkandi á íslenskum fjölmiðlamarkaði,“ skrifar Elfa Ýr.
Hlaðvörp Fjölmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira