Vilja auka viðveru NATO í norðri Agnar Már Másson skrifar 8. október 2026 22:11 Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands. Utanríkisráðuneytið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Anitu Anad, utanríkisráðherra Kanada. Ráðherrarnir vilja uppfæra fríverslunarsamning landanna og koma á fót tengslaneti fyrir jarðhita til að greina tækifæri til samstarfs. Þá vilja þær styrkja viðveru NATO á norðurslóðum.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og kynnir sér að því loknu aðstæður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli áður en hún heldur af landi brott. Þorgerður og Anand gáfu í dag út sameiginlega yfirlýsingu á ensku. Þar kemur fram að Ísland og Kanada, sem norðurskautsríki, hafi ríka hagsmuni af því að tryggja öryggi og stöðugleika á norðurslóðum. „Í því samhengi lögðu ráðherrarnir áherslu á stuðning sinn við aukna viðveru NATO [Atlantshafsbandalagsins] á norðurslóðum og á Norður-Atlantshafi,“ segir í yfirlýsingu þeirra. Ráðherrarnir hafi sömuleiðis fagnað eflingu samstarfs Íslands og Kanada í öryggis- og varnarmálum í samræmi við uppfærða viljayfirlýsingu sem undirrituð var fyrr á þessu ári. Samkvæmt yfirlýsingu stjórnarráðsins ræddu ráðherrarnir einnig stuðning við Úkraínumenn, sem hafa varist innrás Rússa í rúmlega fjögur ár, og stöðu mála í Mið-Austurlöndum. Þá vilji ríkin enn fremur uppfæra fríverslunarsamning sín á milli. Enn fremur samþykktu ráðherrarnir að koma á fót jarðhitaneti Kanada og Íslands undir forystu sendiráðanna, sem á að leiða saman einkageirann, samstarfsaðila úr röðum frumbyggja og viðeigandi hagaðila innan stjórnsýslunnar til að greina tækifæri til samstarfs, meðal annars í norðlægum og afskekktum samfélögum.
Kanada Utanríkismál NATO Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Norðurslóðir Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira