„Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Smári Jökull Jónsson skrifar 9. október 2026 20:01 Guðjón Hreinn Hauksson er formaður Félags framhaldskólakennara KÍ Rekstrarstaða framhaldsskólanna hefur sjaldan verið jafn slæm og hún er í dag segir formaður Félags Framhaldsskólakennara. Í vikunni hélt Kennarasamband Íslands blaðamannafund þar sem stefnumótun félagsins var kynnt sem og áherslur næstu ára.
Í framsögu Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á fundinum kom fram að skólakerfið verði ekki byggt með skyndilausnum frá einu kjörtímabili til annars og því mikilvægt að sambandið sé með skýr markmið og stöðuga eftirfylgni. Á fundinum var slæm rekstrarstaða framhaldsskóla landsins einnig rædd. Rúm 80 prósent skóla eru með rekstrarhalla og 63 prósent þeirra með neikvæðan höfuðstól samanborið við 15 prósent árið 2019. Slökkt sé á áttatíu og fimm stöðugildum árlega Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir skólana verr stadda en þeir hafa nokkurn tíman verið. „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið og þetta er það stig þar sem fólk er að taka út hvað mestan þroska, er að dýpka þekkingu sína og persónulegan þroska til að koma út í samfélagið, inn í háskóla og á starfsvettvang sem fullbúnir einstaklingar. En við erum að kæfa þetta stig og mér líst ekkert á þessa stöðu,“ sagði Guðjón í viðtali við Vísi. Fyrir tólf árum var tekin ákvörðun um að stytta nám til stúdentsprófs niður í þrjú ár. Guðjón segir að frjármagn hafi hins vegar átt að halda sér en staðreyndin sé sú að það hafi minnkað nánast frá og með þeirri dasetningu þegar skólinn var styttur. Guðjón segir að boðaður sé frekari niðurskurður til framhaldsskóla á næstu árum.KÍ Þá segir hann að boðaður sé áframhaldandi niðurskurður til skólanna. „Um það bil 1,5 prósent á hverju ári næstu fimm árin. Þetta þýðir einfaldlega, ef við setjum þetta í samhengi, að við séum að slökkva á áttatíu og fimm stöðugildum kennara á hverju ári næstu fimm árin.“ Nýtt einkunnakerfi geti haft neikvæð áhrif Þá segir hann að breytingar á einkunnakerfi grunnskóla, sem Inga Sæland menntamálaráðherra tilkynnti um og verið er að vinna að í grunnskólum landsins, gætu haft neikvæð áhrif á framhaldsskólastigið. „Ef þessi aðgerð sem á sér stað núna fer á þann veg að fólk fer að raðast illa inn í framhaldsskólana, inn á hæfnistigin, þá getur það komið mjög illa út fyrir þennan árgang sem er að koma inn næsta haust. Þannig að þetta getur orðið mjög erfitt og ætla bara rétt að vona að þetta verði vel unnið. Svona viðamikla breytingu þarf að vinna vel.“ Hann segir afar mikilvægt að öll kerfi séu samanhangandi og tali rétt saman. „Mér sýnist fólk sem er að taka þátt í þessari breytingu vera undrandi á þessari stöðu og finnist erfitt að skilja nákvæmlega út á hvað þetta gengur.“
Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Lægðardrag á leiðinni Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira