Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Kjartan Kjartansson skrifar 12. október 2026 09:38 Loftþrýstingur utan við Hornafjörð gæti náð lægðum sem hafa ekki sést í október í sextíu og þrjú ár á miðvikudag. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Lægð sem þokast frá Bandaríkjunum í átt að Íslandi gæti dýpkað meira en áður var gert ráð fyrir. Gangi nýjustu spár eftir gæti lægðin orðið sú krappasta sem gengur yfir landið í októbermánuði í rúm sextíu ár.
Varað var við norðan vonskuveðri og talsverðri úrkomu með lægð sem kemur að landinu á miðvikudag í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar í morgun. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur sem rekur veðurvefinn Bliku, segir að fylgjast þurfi vel með lægðinni. Útlit sé fyrir að hún dýpki meira en áður var gert ráð skrifar hann í færslu á Facebook og vísar í nýjustu spár Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar frá því í morgun. Gangi nýjustu spár eftir gæti loftþrýstingur skammt undan Hornafirði fallið niður í 936 hektópasköl síðdegis á miðvikudag. „Svo djúpar lægðir eru fáséðar hér við land og í október er aðeins einu sinn vitað til þess að loftvog hafi fallið niður fyrir 940 hPa í mælingu,“ skrifar Einar og vísar til mælingar á Stórhöfða í Vestmannaeyjum upp á 938 hPa. Fyrri spár gerðu ráð fyrir að lægðin ryddi annarri minni á undan sér. Nú virðist hún ætla að gleypa þá minni og fíleflast. „Grannt þarf að fylgjast með þessari þróun næstu tvo til þrjá sólarhringa. Mjög djúpar lægðir eins og sú sem nú er í pípunum valda langoftast óskunda hér og stundum verulegum vandræðum og með eignatjóni. En það er enn langur vegur frá Atlanta til Akureyrar!“ segir Einar.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira