Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Kjartan Kjartansson skrifar 13. október 2026 11:12 Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, (t.v.) með Andreas Norlén, forseta sænska þingsins, (t.h.) eftir þingkosningar sem fóru fram í september. Vísir/EPA Sænska þingið greiðir atkvæði um hvort að Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna, njóti trausts til að verða forsætisráðherra á sænska þinginu á fimmtudag. Ekkert gengur þó hjá Andersson að mynda ríkisstjórn og ljóst er að hún fái ekki meirihluta í atkvæðagreiðslunni.
Mánuður er liðinn frá þingkosningum í Svíþjóð. Andersson fékk stjórnarmyndunarumboð þar sem Jafnaðarmannaflokkur hennar hlaut flest atkvæði þótt hann hefði tapað þingstyrk. Hvorki hefur gengið né rekið hjá Andersson. Upphafleg tilraun hennar til þess að mynda ríkisstjórn með öðrum flokkum í svonefndri rauðgrænni blokk sænskra stjórmála fór út um þúfur vegna ágreinings við Vinstriflokkinn. Henni hefur ekki tekist betur upp síðan þá. Andersson sagði í morgun eftir fund hennar með Andreas Norlén, þingforseta, að aðstæður væru ekki til stjórnarmyndunar þó að viss árangur hefði náðst í viðræðum flokkanna. Óbrúanlegur ágreiningur væri enn til staðar. Þar átti hún væntanlega við að Miðflokkurinn harðneitar að styðja ríkisstjórn sem Vinstriflokkurinn á sæti í. Leiðtogar Vinstriflokksins vilja ekki styðja ríkisstjórn jafnaðarmanna nema þeir fái sjálfir sæti í henni. Á ósigurinn vísan Norlén tilkynnti eftir fundinn í morgun að hann ætlaði að boða til atkvæðagreiðslu um eins flokks ríkisstjórn jafnaðarmanna á fimmtudag, að sögn sænska ríkisútvarpsins. Mest er hægt að boða til slíkra atkvæðagreiðslna fjórum sinnum. Boða þarf til nýrra kosninga ef enginn ríkisstjórnarkostur fær meirihluta atkvæða. Ekki þarf að spyrja að leikslokum því leiðtogar flokka af bæði vinstri og hægri vængnum hafa þegar sagst ætla að greiða atkvæði gegn Andersson. Hún efast ekki um eigin ósigur heldur. „Ég mun tapa,“ sagði hún í morgun. Í framhaldi atkvæðagreiðslunnar segist Norlén ætla ræða við fulltrúa annarra flokka um næstu skref.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Tengdar fréttir Fær aukadag til stjórnarmyndunar Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð, fær einn aukadag til stjórnarmyndunarviðræðna en hún átti upphaflega að skila skýrslu til forseta þingsins á morgun. 11. október 2026 17:47 Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð fær stjórnarmyndunarumboðið á ný eftir að hafa skilað því fyrr í vikunni. Forseti sænska þingsins tilkynnti á blaðamannafundi í morgun að Andersson fái viku frá og með mánudegi til að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn. 2. október 2026 09:40 Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum. 29. september 2026 22:43 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Sjá meira
Fær aukadag til stjórnarmyndunar Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð, fær einn aukadag til stjórnarmyndunarviðræðna en hún átti upphaflega að skila skýrslu til forseta þingsins á morgun. 11. október 2026 17:47
Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð fær stjórnarmyndunarumboðið á ný eftir að hafa skilað því fyrr í vikunni. Forseti sænska þingsins tilkynnti á blaðamannafundi í morgun að Andersson fái viku frá og með mánudegi til að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn. 2. október 2026 09:40
Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum. 29. september 2026 22:43