Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2026 10:19 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, er andvíg því að heimila atvinnumannahnefaleika og vísar til hættu á höfuð- og heilaskaða. Vísir/Anton Brink Atvinnumannahnefaleikar eiga áfram að vera bannaðir á Íslandi, að mati Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hyggst ekki beita sér fyrir lagabreytingum til að heimila þá og vísar til hættu á höfuð- og heilaskaða.
Þetta kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Júlíusar Viggó Ólafssonar. Hann spurði hvort heimila ætti atvinnumannahnefaleika að uppfylltum skilyrðum um öryggi iðkenda, eftirlit og umgjörð íþróttarinnar. Þá spurði hann hvort Inga hygðist beita sér fyrir slíkri lagabreytingu innan ríkisstjórnarinnar. „Ráðherra hefur því ekki í hyggju að beita sér fyrir breytingum á lögum sem heimila iðkun eða keppni í atvinnumannahnefaleikum,“ segir í svarinu. Endurtekin höfuðhögg valdi áhættu Inga vísar til samantektarrannsókna sem bendi til meiri meiðslatíðni í atvinnumannahnefaleikum en í áhugamannahnefaleikum og öðrum bardagaíþróttum. Það eigi einkum við um heilahristing og alvarlega höfuðáverka. Inga Sæland telur öryggisreglur og lækniseftirlit ekki geta komið í veg fyrir áhættuna sem fylgir endurteknum höfuðhöggum í atvinnumannahnefaleikum.Vísir/Viktor Freyr Lengri viðureignir og áhætta sem safnist upp á keppnisferli atvinnumanna skýri meðal annars muninn. Öryggisreglur, lækniseftirlit og tímabundin keppnisbönn geti dregið úr bráðri áhættu. Þau úrræði geti hins vegar ekki komið í veg fyrir áhættuna sem fylgi endurteknum höfuðhöggum, að því er segir í svarinu. Tvenn ólík keppnisform Á Íslandi er þegar keppt í áhugamannahnefaleikum, einnig kölluðum ólympískum hnefaleikum, sem hafa verið heimilir frá 2002. Hnefaleikasamband Íslands heldur meðal annars Íslandsmeistaramót í því keppnisformi. Heitið áhugamannahnefaleikar vísar til keppnisformsins og reglnanna sem gilda um það. Keppendurnir geta verið þrautþjálfaðir afreksmenn. Júlíus Viggó Ólafsson spurði ráðherrann hvort heimila ætti atvinnumannahnefaleika að uppfylltum skilyrðum um öryggi iðkenda, eftirlit og umgjörð íþróttarinnar.Instagram/Sjálfstæðisflokkurinn Notkun höfuðhlífar ræður ekki hvort viðureign telst til áhugamanna- eða atvinnumannahnefaleika. Til dæmis keppa fullorðnir karlar í ólympískum hnefaleikum án höfuðhlífar samkvæmt reglum World Boxing. Í svari Ingu segir að meiri meiðslatíðni í atvinnumannahnefaleikum skýrist meðal annars af lengri viðureignum og áhættu sem safnist upp á keppnisferli atvinnumanna. Hún telur öryggisreglur og lækniseftirlit geta dregið úr bráðri áhættu en ekki komið í veg fyrir áhættuna sem fylgi endurteknum höggum á höfuð. Vilja leyfi með öryggisskilyrðum Hildur Sverrisdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir hafa lagt fram frumvarp um bardagaíþróttir sem myndi fella bannlögin frá 1956 úr gildi. Þær segja hættu á heilsutjóni ekki eina og sér réttlæta skerðingu á frelsi fólks til íþróttaiðkunar eða atvinnufrelsi þess. Samkvæmt frumvarpinu yrði keppni þar sem höfuðhögg eru heimil háð leyfi ráðherra. Leyfi mætti aðeins veita ef reglur íþróttarinnar tryggðu keppendum viðunandi öryggi. Hildur Sverrisdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir vilja afnema bann við atvinnumannahnefaleikum og gera bardagakeppni þar sem höfuðhögg eru heimil háða leyfi og öryggisskilyrðum.Vísir Í greinargerðinni segir að reglurnar þurfi að fjalla um búnað, verklag eftir rothögg, eftirfylgni eftir keppni, lengd viðureigna og aldurstakmark. Frumvarpið ákveður sjálft hvorki tiltekinn lágmarksaldur, hámarkslengd viðureigna né ákveðna hvíld eftir rothögg. Ráðherra gæti sett frekari leyfisskilyrði. Umsókn þyrfti að berast að minnsta kosti tveimur mánuðum fyrir keppni og henni fylgja keppnis- og öryggisreglur. Ráðherra ætti jafnframt að setja reglugerð um öryggi húsnæðis og eftirlit með búnaði. Hægt yrði að afturkalla leyfi vegna verulegra brota á skilyrðum þess. Áhugamannahnefaleikar hafa verið heimilir hér á landi frá 2002 samkvæmt reglum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Bannið við atvinnumannahnefaleikum stendur hins vegar enn.
Box Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira