Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2026 14:12 Lagt er til að gjald fyrir akstursþjónustu eldra fólks í Kópavogi hækki um rúmlega 163 prósent í hærri tekjuflokknum. Breytingarnar bíða afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar. Vísir/VIlhelm Gjald fyrir akstursþjónustu eldra fólks í Kópavogi gæti hækkað úr 673 krónum í 1.772 krónur á ferð samkvæmt tillögu sem velferðar- og mannréttindaráð bæjarins hefur samþykkt fyrir sitt leyti. Hækkunin næmi rúmlega 163 prósentum hjá þeim sem falla í hærri tekjuflokk þjónustunnar.
Meirihluti ráðsins samþykkti breytingarnar á fundi 12. október og vísaði þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar. Örn Arnarson, fulltrúi Samfylkingarinnar, og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, fulltrúi Viðreisnar, sátu hjá. Breytingarnar hafa því ekki hlotið endanlega samþykkt. Sextán ferðir gætu kostað rúmar 28 þúsund krónur Lagt er til að teknir verði upp tveir gjaldflokkar eftir tekjum, með sömu tekjuviðmiðum og í stuðningsþjónustu bæjarins. Í lægri gjaldflokknum myndi hver af fyrstu sextán ferðunum í mánuði kosta 787 krónur í stað 673 króna. Það er um 17 prósenta hækkun. Í hærri flokknum yrði gjaldið 1.772 krónur. Sá sem færi sextán ferðir á mánuði og félli í hærri gjaldflokkinn myndi því greiða 28.352 krónur í stað 10.768 króna. Mánaðarleg útgjöld hans ykjust um 17.584 krónur. Ferðir umfram 16 kosta nú 1.346 krónur hver. Samkvæmt tillögunni yrði gjaldið 1.772 krónur í lægri tekjuflokknum og 2.362 krónur í þeim hærri. Gjaldskráin yrði uppfærð á þriggja mánaða fresti eftir breytingum á kostnaði við aksturinn. Telja hækkunina geta fækkað ferðum Í kostnaðarmati sem fylgir málinu, dagsettu 8. september, er gert ráð fyrir allt að 15 milljóna króna tekjuauka á ári vegna breytinganna. Þar kemur fram að 50 milljónum króna hafi verið varið til þjónustunnar í fjárhagsáætlun ársins. Kostnaður fyrstu sjö mánuðina hafi hins vegar verið 38 milljónir og stefni í 65 milljónir yfir árið. Jafnframt er bent á að hækkunin geti haft áhrif á notkun þjónustunnar. „Það er ekki ólíklegt að ef gjaldhækkun verður þá gæti ferðum fækkað,“ segir í minnisblaðinu. Undanþágur verði felldar brott Breytingarnar snúa einnig að því hverjir geti nýtt þjónustuna. Lagt er til að fella brott heimild til að veita akstursþjónustu í undantekningartilvikum vegna tímabundinnar hreyfihömlunar, óháð aldri. Einnig verði felld brott undanþága sem hefur heimilað eldra fólki á stofnunum, svo sem hjúkrunarheimilum, að fá akstursþjónustu í rökstuddum tilvikum til að sinna einkaerindum eða fyrirbyggja félagslega einangrun. Þetta kemur fram í fylgiskjölum tillögunnar. Samkvæmt drögum að nýjum reglum yrðu almenn ferðamörk áfram sextán ferðir á mánuði. Heimilt yrði að samþykkja fleiri í rökstuddum tilvikum, þó aldrei fleiri en 32. Akstur fram og til baka telst tvær ferðir.
Kópavogur Eldri borgarar Samgöngumál Skattar, tollar og gjöld Sveitarstjórnarmál Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira