Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. október 2026 19:35 Svo virðist sem Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, hafi spáð réttilega fyrir um framtíðina í færslu á Facebook fyrir um sex mánuðum. Þar spurði Snorri hvort Jón Gnarr væri lengst uppi og spurði í kjölfarið hvort úrsögn úr Viðreisn væri á næsta leyti.
Snorri reyndist auðvitað að hluta til sannspár en í dag tilkynnti Jón Gnarr að hann segði sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann hefur þó ekki sagt sig úr Viðreisn og talar enn um sig sem Viðreisnarmann. Færsla Snorra er frá 14. apríl og því nánast hálft ár liðið upp á dag síðan að hann spurði hvort það mætti eiga von á því að þingmaðurinn og grínistinn myndi segja sig úr Viðreisn. Færsluna má sjá hér fyrir neðan. Þar spyr Snorri hvort að Jón Gnarr sé lengst uppi og vísar þar til tungutaks ungdómsins. Hugtakið „lengst uppi“ er gjarnan notað þegar vísað er til þess að einhverjum gangi vel eða líði vel. Snorri undirstrikar það með því að taka fram að Jón líti sérlega vel út. Hann nefnir sérstaklega að Jón hafi bæði grennst og eflst. „Er með áráttu fyrir Völuspá og er nú farinn að peppa endalok vóksins í samfélagsmiðlafærslum. Hvað næst? Úrsögn úr Viðreisn? Eða ættum við kannski að byrja á að stofna bara hlaðvarp saman?“ Skrifar Snorri í færslu sinni en ekki liggur fyrir hvort alvara sé í orðum um sameiginlegt hlaðvarp. Í athugasemd við færsluna bætir Snorri við að hann hafi óvænt rekist á Jón um leið og hann birti færsluna. Hann lét þá myndina sem er efst í fréttinni fylgja með. „Var ekki fyrr búinn að ýta á enter að ég rakst á manninn á göngum þingsins þar sem hann stóð fyrir utan kústaskáp sem hann hefur í þrígang reynt að opna í von um að þar leynist líkamsræktarsalur þingmanna. Ég sem var einmitt á leið þangað vísaði þá Jóni veginn og sýndi honum salinn. Nú veit hann hvar hann er og hyggur á æfingu von bráðar. Þar geta viðræður okkar haldið áfram. Þið sjáið hvað er hægt með samstarfi og smá leiðsögn í rétta átt.“ Það verður fróðlegt að sjá hvort spádómur Snorra um sameiginlegt hlaðvarp verði einnig að veruleika.
Viðreisn Miðflokkurinn Alþingi Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira