Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Birgir Olgeirsson skrifar 16. október 2026 13:32 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Einar Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, varar við því að ófullnægjandi mönnun landamæraeftirlits á Keflavíkurflugvelli geti grafið undan tengiflugi félagsins og leitt til færri áfangastaða og ferða. Fjölmargir farþegar hafi misst af flugi í sumar vegna biðraða.
Þetta kemur fram í umsögn Icelandair til fjárlaganefndar Alþingis. Félagið segir fjárlagafrumvarp næsta árs ekki mæta aukinni mannaflaþörf við landamæraeftirlitið. Biðraðirnar hafi kostað Icelandair endurbókanir og hótelgistingu fyrir farþega sem misstu af tengiflugi. Þá hafi vélum verið seinkað til að bíða eftir farþegum, með keðjuverkandi töfum í leiðakerfinu. „Kerfið gengur aðeins upp ef farþegar komast hratt og örugglega milli véla,“ segir í umsögninni. Bogi bendir á að tengifarþegar geri Icelandair kleift að halda úti fleiri flugleiðum og ferðum en íslenski markaðurinn og ferðamenn á leið hingað stæðu einir undir. Slæm reynsla geti fælt farþega frá því að velja tengingu um Ísland aftur. Í umsögn Margrétar Kristínar Pálsdóttur, lögreglustjóra á Suðurnesjum, er fjárþörf vegna viðbótarmönnunar metin á 696,9 milljónir króna á ári. Núverandi fjárheimildir geri ráð fyrir um 40 landamæravörðum. Bæta þurfi við 30 stöðugildum yfir veturinn og 40–60 yfir sumarið. Lögreglustjórinn varar við því að án aukins fjármagns verði ekki hægt að tryggja skilvirkt eftirlit eftir innleiðingu nýja komu- og brottfararkerfis Schengen-ríkjanna. Í umsögn hennar kemur jafnframt fram að sjálfsafgreiðslustöðvar séu ekki komnar í fulla virkni, hugbúnaður sé ekki fullbúinn og ekki hafi tekist að fylla allar stöður þrátt fyrir tímabundið aukið fjármagn. Icelandair styður fjárbeiðnina og segir ákvörðun þurfa að liggja fyrir við afgreiðslu fjárlaga í haust. Ráðning og þjálfun taki mánuði og óbreytt mönnun dugi ekki næsta sumar, að mati félagsins.
Keflavíkurflugvöllur Icelandair Landamæri Ferðaþjónusta Flug Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira