Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Agnar Már Másson skrifar 17. október 2026 17:40 Lögreglan greinir frá þessu. Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið átti sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gærkvöldi að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra eftir að tilkynning hafði borist um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Lögreglan greinir frá því í færslu á Facebook að slysið hafi átt sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks á jeppum hafi verið að losa fastan jeppa. „Ljóst var strax í upphafi að um alvarlegt slys var að ræða og voru viðbragðsaðilar sendir á hæsta forgangi á vettvang,“ segir í færslu lögreglu. „Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi.“ Björgunarsveitir hafi flutt samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins hafi veitt því áfallahjálp. Lögregla segir slysið vera til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra en rannsóknarnefnd samgönguslysa hafi einnig verið upplýst um slysið. Lögregla hyggst ekki veita frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu. Lögreglumenn, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk frá björgunarsveitunum Þingey, Stefáni í Mývatnssveit, Hjálparsveit skáta í Aðaldal, Dalbjörg og Súlum á Akureyri fóru á vettvang slyssins í gær, að því er lögreglan greindi frá fyrr í dag. Fréttin hefur verið uppfærð.
Lögreglumál Jöklar á Íslandi Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira