Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Lovísa Arnardóttir skrifar 18. október 2026 13:03 Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Vilhelm Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Vinnumálastofnun vekja athygli á því að foreldrar sem fóru í fæðingarorlof 2022 til 2025 og störfuðu í öðru EES-ríki geti átt rétt á skaðabótum. Tilefni tilkynningar er dómur Hæstaréttar frá því í september þar sem ríkinu var gert að greiða íslenskum lækni skaðabætur vegna rangrar innleiðingar á reglum EES-samningsins í tengslum við greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.
Dómurinn varðaði þannig útreikning á meðaltali heildarlauna í þeim tilfellum þar sem foreldri starfaði í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Kona sem hafði starfað sem læknir í Danmörku frá 2015 til 2019 höfðaði mál gegn ríkinu þar sem hún heimtaði skaðabætur á þeim grundvelli að ríkið hefði staðið ranglega að því að leiða í lög EES-reglugerð um frjálsa för launþega og fyrirmæli Evrópuþingsins um samræmingu almannatrygginga. Málið snýr að því að þegar hún flutti heim til Íslands haustið 2019 og átti barn í mars 2020 hafi hún aðeins hlotið lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, sem nema um 184 þúsund krónum á mánuði. Þar sem lögin miðuðu við tekjur á íslenskum vinnumarkaði á ákveðnu tímabili fyrir fæðingu, og hún hafði engar slíkar tekjur þar sem hún hafði verið úti í Danmörku, fékk hún minna greitt en læknir í fullu starfi á Íslandi hefði annars. Fékk tæpar þrjár milljónir í skaðabætur Niðurstaða dómsins var sú að konan hefði fengið of lágar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði og voru konunni dæmdar 2,7 milljónir í skaðabætur. Niðurstaða dómstólsins var jafnframt sú að íslenska ríkið hefði ekki innleitt EES-lögin nógu fljótt en þeim hefur nú verið breytt. Í tilkynningu frá ráðuneytinu og Vinnumálastofnun kemur fram að þeir foreldrar sem störfuðu að hluta eða öllu leyti á 12 mánaða viðmiðunartímabili fæðingarorlofs í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og fengu greitt fæðingarorlof á tímabilinu september 2022 til og með júní 2025 kunni að eiga rétt á skaðabótum á grundvelli niðurstöðu dómsins. Það eigi þó einungis við ef viðkomandi starfaði skemur en fjóra mánuði á innlendum vinnumarkaði á 12 mánaða viðmiðunartímabili við útreikning á meðaltali heildarlauna. Foreldrar sem uppfylla öll neðangreind skilyrði kunna að eiga slíkan rétt: Fengu greitt úr Fæðingarorlofssjóði á tímabilinu september 2022 til og með júní 2025. Störfuðu skemur en 4 mánuði á innlendum vinnumarkaði á 12 mánaða viðmiðunartímabilinu sem notað er við útreikning á meðaltali heildarlauna. Störfuðu í öðru EES-ríki á viðmiðunartímabilinu. Foreldrar sem telja sig verr setta hvað fjárhæð greiðslna úr sjóðnum varðar vegna flutnings til landsins og að þeir eigi rétt til skaðabóta á grundvelli dómsins geta beint kröfum sínum til Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun tekur á móti umsóknunum. Samkvæmt tilkynningu mun stofnunin senda allar upplýsingar til ríkislögmanns sem tekur ákvörðun um rétt til greiðslu skaðabóta fyrir hönd íslenska ríkisins. Umræða um bókun 35 Dómurinn og málið sjálft hafa verið töluvert til umræðu í tengslum við innleiðingu á bókun 35 og málsókn ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, gegn íslenska ríkinu. Eftirlitsstofnun EFTA hefur vísað máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. Þannig hafi Ísland ekki innleitt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn. Fleiri gætu leitað réttar síns Sérfræðingur í Evrópurétti sagði í viðtali við Vísi að fleiri gætu leitað réttar síns vegna málsins, enda skýrt fordæmi nú fyrirliggjandi. Þorgerður Katrín sagði þegar dómurinn féll í Hæstarétti að hann væri dæmi um það af hverju bókun 35 og innleiðing hennar skiptir máli. „Þegar upp er staðið er bókun 35 réttlætismál fyrir íslenskan almenning og íslensk fyrirtæki og við erum búin að sjá það að í sex eða sjö ár hefur þessi kona barist fyrir rétti sínum og á sama tíma hefur Alþingi Íslendinga ekki náð að klára þetta mál. Að klára þetta mál er einfaldlega að standa með EES-samningnum og að standa með réttindum Íslendinga,“ segir sagði hún um það. Villandi málflutningur Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa mótmælt þessum málflutningi og segja dómsmál um fæðingarorlof og skaðlegt sælgæti hafa verið notuð með villandi hætti til að rökstyðja innleiðingu bókunar 35. Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sakaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hálfsannleik og blekkingar í umræðum á Alþingi fyrr í mánuðinum.
Fæðingarorlof Bókun 35 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Kjaramál Dómsmál EES-samningurinn Alþingi Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira