Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Agnar Már Másson skrifar 18. október 2026 19:43 Rósa segir að óreiðir gærdagsins hafi skyggt á annars réttmæt mótmæli stúdetna sem staðið hafa yfir síðustu viku. Samsett Mynd Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, fékk táragas í augunun þegar hún var við mótmæli í Angers í Norðvestur-Frakklandi í gær. Hún segist finna fyrir mikilli spennu í franska þjóðfélaginu – en líka sviða í augunum.
Rósa Björk hefur verið í Frakklandi undanfarna daga. Þegar blaðamaður ræddi við hana í kvöld beið hún spennt eftir því að Emmanuel Macron Frakklandsforseti myndi hefja ávarp sitt vegna ofbeldis og skemmdarverka sem áttu sér stað í kjölfar stórra mótmæla víða um landið í gær. Eins og fjallað hefur verið um hafa stúdentamótmæli staðið yfir undanfarnar þrjár vikur þar sem námsmenn hafa krafist úrbóta í menntakerfinu og betri aðstæðna í skólum. Í gær stigmögnuðust mótmælin allverulega og að minnsta kosti 1.200 voru handteknir víða um Frakkland. Talið er að um 150 lögreglumenn hafi slasast í óeirðunum. Skyggi á mótmæli stúdenta „Menningarlega er bara mikill stuðningur við það þegar ungt fólk fer og krefst úrbóta í sínu umhverfi,“ segir Rósa í samtali við Vísi og líkir mótmælunum við 68-kynslóðina svokölluðu. „En það sem gerist í gær er það að það er boðað til almennra mótmæla og þá er eins og fjandinn sé laus.“ Í París kom til harðra átaka við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann, að því er franskir miðlar hafa greint frá. Kveikt var í byggingum í París og víðar, meðal annars í Limoges þar sem mikill eldur í ráðhúsinu olli því að þakið hrundi að hluta. Borgaryfirvöld í Marseille óskuðu eftir liðsinni frá yfirvöldum. „Í Angers, þar sem ég er, varð ég vitni að því þegar það var brotist inn í hluta af ráðhúsinu og auðvitað er þetta náttúrulega ekki eitthvað sem er til eftirbreytni, að sjálfsögðu ekki, og svona skemmdarverk eru ótrúlega ömurleg,“ segir hún. Þá nefnir hún að aðstoðarborgarstjóri Parísarborgar hafi sagt við fjölmiðla í dag að þetta séu verstu skemmdarverk sem nokkru sinni hafi verið unnin í mótmælum í París. „Og það er náttúrulega rosalega stórt.“ „En það er líka rosalega dapurlegt að sjá að þetta skyggi á mótmæli stúdenta sem hafa farið almennt mjög vel fram,“ bætir hún við. Fékk táragas í augun Sjálf var Rósa á mótmælum til að sýna unga fólkinu stuðning. „Maður sá að unga fólkið var viðbúið öllu. Það voru allir með grímur, augndropa og voru viðbúnir því að fá á sig táragas, sem ég var mjög hissa á,“ segir hún. „Og auðvitað voru náttúrulega einhverjir óeirðarseggir,“ segir Rósa og nefnir innbrotið í ráðhúsið. „En mér fannst lögreglufólk grípa of fljótt til táragass. Mér fannst eiginlega með ólíkindum hvað þau voru fljót að grípa til þess að henda táragasi á mannfjöldann.“ Sjálf fékk Rósa táragas í augun, þrátt fyrir að vera nokkuð fjarri fremstu víglínu, ef svo má kalla. „Mér sveið bara verulega í augun og ég var eiginlega bara hissa á því hvað þetta var fljótt að ná til manns,“ segir hún um gasið. Hún kveðst þó hafa fengið aðstoð frá viðstöddum sem hafi boðið henni augndropa. Spenna í loftinu Rósa segir að mikil spenna ríki í frönsku samfélagi um þessar mundir, ekki síst vegna komandi forsetakosninga þar sem öfgahægriframbjóðandinn Marine Le Pen mælist með ríflega þrjátíu prósenta fylgi og hefur mikið forskot á aðra frambjóðendur. Í öðru sæti mælist vinstrimaðurinn Jean-Luc Mélenchon með um sautján prósent en enn er óljóst hver tekur við af Macron sem frambjóðandi Miðjuflokksins. „Þetta sýnir náttúrulega líka að það er spenna í frönsku samfélagi og það er ójöfnuður og það er uppgangur öfgahægrisins, sem fólk er líka að mótmæla,“ segir Rósa. „Þannig að eins og við sáum í fréttum í dag þá eru náttúrulega líka allir að keppast við að finna einhvern sökudólg fyrir þessum skemmdarverkum og henda því inn í þennan upptakt forsetakosninganna,“ bætir hún við og nefnir ræðu sem Le Pen hélt í kvöld þar sem hún kenndi ríkisstjórn Macron um það sem gerðist í gær. Macron flutti síðan ávarp í kvöld þar sem hann sagði ekkert réttlæta ofbeldið sem sást víða um Frakkland í gær. Hann sagði að gera þyrfti greinarmun á milli mótmælenda sem færu fram á „réttmætar kröfur“ annars vegar og hins vegar þeirra sem „eyðilögðu, rústuðu og stálu“.
Frakkland Vinstri græn Íslendingar erlendis Mótmælaalda í Evrópu 2026 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira