Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Agnar Már Másson skrifar 19. október 2026 18:00 Viktor Árnason stjórnarmaður, Ari Orrason formaður og Elvar Freyr Fossdal Sigfússon stjórnarmaður. Á mynd vantar Elísabetu Freyju Úlfarsdóttur. Samsett mynd Þrír af fjórum stjórnarmönnum í nýkjörinni stjórn ungliðahreyfingar Vinstri grænna hafa áður skipað sæti á framboðslista Sósíalistaflokksins. Formaðurinn, sem skipaði 2. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi árið 2024, kveðst hafa skipt um flokk eftir að starf Sósíalista úti á landi hafi lagst af.
Um helgina var greint frá því að Ung vinstri græn (UVG) hefði kosið sér nýja forystu. Hinn 26 ára Ari Orrason var kjörinn formaður en í þingkosningum 2024 skipaði hann 2. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi. Elvar Freyr Fossdal Sigfússon, sem er einnig nýr í stjórn UVG, skipaði 15. sæti á sama lista flokksins það ár. Elísabet Freyja Úlfarsdóttir var árið 2021 í 17. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Suðvesturkjördæmi. Eini maðurinn í stjórn UVG sem hefur ekki skipað sæti á lista Sósíalistaflokksins er Viktor Árnason, en hann skipaði 36. sæti á lista Vinstrisins í sveitarstjórnarkosningum í maí. Hvað kemur til að svona margir fyrrum Sósíalistar séu nú komnir í stjórn VG? „Ég get nú ekki svarað fyrir Elísabetu,“ svarar Ari, nýr formaður UVG, í samtali við Vísi, en hvað okkur Elvar varðar var þetta aðallega vegna þess að starfið [þ.e. starf Sósíalistaflokksins] lagðist af úti á landi,“ Því hafi þeir Ari og Elvar, sem báðir eru frá Akureyri, ákveðið að skipta yfir í VG sem Ari segir hafa verið lítið mál enda ekki mikill málefnaágreiningur milli þessara tveggja vinstri flokka. Aðspurður svarar hann neitandi að þetta hafi nokkuð að gera með hina svokölluðu „hallarbyltingu“ sem gerð í Sósíalistaflokknum vorið 2025, þegar hópur stillti sem sér upp til höfuðs Gunnari Smára Egilssonar, stofnanda flokksins, á aðalfundi. „Það bara einhvern veginn náðist ekki að setja fókusinn út á land. Það var upplifunin hjá mjög mörgum, held ég.“ Fyrir vikið segir hann nýja forystu ungliðahreyfingarinnar ætla að setja landsbyggðarmálin betur á dagskrá. Hann kveðst ekki geta sagt til um hvort margir aðrir Sósíalistar hafi gerst liðhlaupar til þess að ganga í VG. „Ég veit það ekki alveg,“ segir hann en bendir á að í sveitarstjórnarkosningum í maí hafi einhverjir flokksmenn Sósíalistaflokksins og VG myndað saman framboðið Vinstrið.
Vinstri græn Sósíalistaflokkurinn Vinstrið Sveitarstjórnarkosningar 2026 Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira