Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Birgir Olgeirsson skrifar 20. október 2026 15:17 Rósa Guðbjartsdóttir gagnrýnir afstöðu Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra til Litla spítalans og vonast til að einkareksturinn hafi ekki blindað sýn hennar. Vísir/Anton Brink Það skýtur skökku við að heilbrigðisráðherra afskrifi Litla spítalann í fjölmiðlum á meðan erindi aðstandenda hans er enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum Íslands, að mati Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún vonast til að einkarekstur þjónustunnar hafi ekki blindað sýn ráðherra.
Rósa gagnrýndi afstöðu Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra í ræðu á Alþingi. Tilefnið voru ummæli ráðherra í viðtali við Vísi í síðustu viku, þar sem Alma sagði ekkert fjárhagslegt svigrúm hjá Sjúkratryggingum til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum. Spyr hvort boðlegt sé að hafna erindinu í fjölmiðlum Rósa sagði biðlista í heilbrigðiskerfinu lengjast hratt og þörfina fyrir þjónustu aukast með fólksfjölgun og hækkandi aldri þjóðarinnar. Nauðsynlegt væri að létta álagi af Landspítalanum og fjölga tækifærum sem gætu laðað heilbrigðisstarfsfólk til landsins. Hún vísaði til umræðu í ríkissjónvarpinu þar sem heilbrigðisráðherra, forstjóri Landspítalans og fleiri hefðu rætt stöðuna. Þar hefði verið lögð áhersla á valfrelsi og samstarf til að nýta fjármagn betur og bæta þjónustu. Í því ljósi skyti skökku við að ráðherra hefði afskrifað það sem Rósa kallaði „nýtt og öflugt framtak sem getur gagnast kerfinu og fólkinu í landinu“. Rósa sagði erindi aðstandenda Litla spítalans enn á frumstigi, í greiningu og frumskoðun hjá Sjúkratryggingum. Óskað væri eftir greiðsluþátttöku ríkisins þar sem það ætti við. Hún sagðist vonast til að ráðherra hefði ekki látið „rekstrarformið blinda sýn“. „En er það boðlegt, virðulegur forseti, að ráðherra hafni slíku erindi í fjölmiðlum á meðan það er í réttu stjórnsýslulegu ferli hjá undirstofnun ráðuneytisins?“ Ráðherra sagði smáslys ekki meginvandann Í viðtalinu við Vísi sagði Alma að hvorki lægi fyrir samningur um kaup ríkisins á þjónustu Litla spítalans né vilyrði um greiðsluþátttöku. Þeir fjárlagaliðir Sjúkratrygginga sem tengdust þjónustunni væru í miklum halla. Hún vísaði jafnframt til tveggja skýrslna um bráðaþjónustu, frá 2022 og 2024, þar sem ekki hefði verið mælt með slíku smáslysaúrræði. Meginvandi bráðamóttöku Landspítalans hefði tengst því að ekki væri hægt að útskrifa aldraða sjúklinga. Þá þyrfti að gæta að áhrifum nýrrar þjónustu á mönnun opinberra stofnana. Ef ríkið keypti þjónustuna þyrfti að fara fram opið innkaupaferli með útboði eða auglýsingu. Vilja brúa bil í þjónustunni Litli spítalinn er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68. Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verkefninu ásamt hópi heilbrigðisstarfsfólks. Í viðtali við Vísi í síðustu viku sagði Guðrún markmiðið að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu. Meðal áherslna væri að fólk með langvinna sjúkdóma fengi eftirlit, meðferð og ráðgjöf á einum stað. Aðstandendur vildu meðal annars laða heilbrigðisstarfsfólk heim frá útlöndum. Stefnt væri að því að heilbrigðisstarfsfólk yrði meirihlutaeigendur.
Heilbrigðismál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira