Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar 21. október 2026 08:32 Það er ekki á hverjum degi sem þingmaður segir sig úr þingflokki og gerir síðan skriflegan samning um að halda áfram að vera í honum. Eða svona næstum því. En Jóni Gnarr og Viðreisn tókst það. Jóni gengur álíka vel að yfirgefa þingflokk Viðreisnar og Bretum gekk að yfirgefa Evrópusambandið á sínum tíma, en lengi skal yfirvaldið reyna. Jón er nú orðinn sjálfstæður þingmaður. Svo sjálfstæður að hann þurfti að fá samþykki fyrrverandi félaga sinna fyrir því hvernig hann ætlar að haga hinu nýfengna sjálfstæði. Samningurinn er stórmerkilegt plagg. Jón skuldbindur sig til að styðja ríkisstjórnina, mæta í mikilvægar atkvæðagreiðslur og halda áfram að sinna tilteknum nefndarstörfum. Á móti fær hann áfram aðgang að sérfræðiaðstoð þingflokks Viðreisnar og Viðreisn kallar inn varamann fyrir hans hönd á nefndarfundi og í fjarveru hans frá Alþingi. Flestum hefði þótt nóg að segja hið síðastnefnda upphátt til að átta sig á fáránleikanum. Hann er sem sagt farinn úr þingflokknum, en þingflokkurinn er ekki alveg farinn úr honum. Þetta minnir óneitanlega á hjón sem hafa ákveðið að skilja en gera um leið samning um að búa áfram saman. En rúsínan í pylsuendanum er lokamálsgrein samningsins. Þar segir að hann verði sendur forseta Alþingis og skrifstofu þingsins til formlegrar skráningar. Til formlegrar skráningar!? Er verið að þinglýsa sjálfstæði þingmannsins eða eignarhaldi þingflokksins á atkvæði hans í þingsal? Er þingmaðurinn kominn á sérstaka skrá yfir frjálsa menn í föstu sambandi? Og hvers vegna að senda plaggið til forseta Alþingis? Á forsetinn að gerast trúnaðarmaður í þessu pólitíska sambúðarslitamáli? Er honum ætlað að varðveita samninginn, fylgjast með efndum og úrskurða um umgengnisrétt Viðreisnar við atkvæði Jóns? Hvað gerist ef Jón vaknar einn morguninn með sjálfstæða skoðun? Hringir Pawel þá í forseta Alþingis og tilkynnir samningsbrot? Verður boðað til sáttafundar? Eða fær Jón áminningu frá skrifstofu þingsins fyrir óheimila notkun atkvæðis í þingsal? Þetta kallar í raun á nýtt embætti innan þingsins, eins konar sýslumann. Þar mætti skrá þingmannaskilnaði, staðfesta áframhaldandi tryggð og gefa út vottorð um sjálfstæði með fyrirvara um samþykki fyrrverandi þingflokks. Í stjórnarskránni segir hins vegar að alþingismenn séu eingöngu bundnir við sannfæringu sína. Sú einfalda regla hefur dugað íslensku þingræði ágætlega. En nú færumst við fram á veginn. Sannfæringin hefur fengið fjögurra kafla samning, tvær undirskriftir og skráningarbeiðni hjá forseta Alþingis. Eftir stendur auðvitað spurning um tilganginn. Getur verið verið að innri mein þeirra í Viðreisn séu orðin svo illvíg að menn óttist að fleiri stökkvi frá borði ef viðskilnaðurinn við Jón verður alger? Það þurfi að forma millileið til að forðast þeirra eigin litla Gnexit. Fyrir Jón sjálfan gæti þetta bara snúist um að losna við þingflokksfundina, þar er víst ekki mikið stuð. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergþór Ólason Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar Miðflokkurinn Viðreisn Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun