Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Birgir Olgeirsson skrifar 21. október 2026 11:05 Guðrún Hafsteinsdóttir vill láta rannsaka vinnubrögð embættis sérstaks saksóknara, sem Ólafur Þór Hauksson stýrði. Rannsóknin næði meðal annars til hlerana, handtaka og meðferðar rannsóknargagna. Vísir Þingmenn vilja að sérstök rannsóknarnefnd kanni hvort réttindi sakborninga hafi verið virt við rannsókn mála eftir bankahrunið. Meðal annars verði farið yfir hleranir, handtökur og varðveislu rannsóknargagna hjá sérstökum saksóknara.
Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, og þrettán annarra þingmanna. Lagt er til að þriggja manna rannsóknarnefnd skili Alþingi niðurstöðum og tillögum að úrbótum innan árs frá skipun. Tillagan er á dagskrá þingfundar í dag. Hún hefur áður verið lögð fram á tveimur þingum án þess að ná fram að ganga. Telja þrýsting hafa skapað hættu á óhlutlægni Flutningsmenn segja mikinn þrýsting hafa verið á yfirvöld eftir hrunið að sækja tiltekna einstaklinga til saka. Við slíkar aðstæður sé hætta á að ákæruvaldið gæti ekki nægilega að hlutlægni. Í greinargerðinni segir að orðræðan hafi oft verið sú að „markmið embættisins væri öðru fremur að sefa reiði almennings“. Nefndin færi einnig yfir ákvarðanir um ákærur og niðurfellingu mála. Rannsóknin næði til annarra stofnana og einkaaðila sem komu að rannsóknum sérstaks saksóknara, meðal annars ríkissaksóknara, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Boðaði rannsókn eftir umfjöllun um gagnaleka Guðrún boðaði fyrst tillögu um slíka rannsókn í maí 2025, í kjölfar umfjöllunar um að trúnaðargögn úr rannsóknum sérstaks saksóknara hefðu komist í hendur einkaaðila. Hún sagði þá að skoða þyrfti störf ákæruvaldsins í heild og hvort réttindi borgaranna hefðu verið virt. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sagði í sömu umræðu að hún hefði þegar óskað eftir upplýsingum um vörslu, öryggi og eyðingu gagna. Hún vísaði jafnframt til þess að lögregla, Persónuvernd og nefnd um eftirlit með lögreglu hefðu málið til skoðunar.
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Hrunið Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira