Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. október 2026 10:06 Þorgerður Katrín ásamt Astrid Bergmål aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Noregs, Guy Parmelin forseta Sviss og ráðherra efnahags-, mennta- og rannsóknarmála, Lê Mạnh Hùng iðnaðar- og viðskiptaráðherra Víetnams og Brigitte Haas forsætisráðherra Liechtensteins og fjármálaráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar er að verða hálfnuð á ferðalagi sínu í Asíu. Hún undirritaði fríverslunarsamning við Víetnam og heldur nú til Kína. „
Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur aðstoðarmanni sínum og Maríu Rut Kristinsdóttir, varaformanni þingflokks Viðreisnar og maka Ingileifar, sem er í fríi sem maki aðstoðarmannsins. Ytra hitti Þorgerður Katrín fyrir fulltrúa hinna EFTA ríkjanna en þar má finna aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Noregs, forseta Sviss, og forsætisráðherra Liechtenstein. Ferðalagið var löngu skipulagt en ber upp á tíma þar sem kastljósið hefur beinst að Viðreisn eftir að Jón Gnarr, þingmaður flokksins, ákvað óvænt að yfirgefa þingflokkinn. Hann hefur með alls konar myndlíkingum lýst stöðu mála innan Viðreisnar og meðal annars líkt sambandi sínu við flokkinn sem sambandi við áfengissjúkling, sagt forystufólk í flokknum ekki þola hvert annað og lýst nei-inu í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem gríðarlegu áfalli. Þorgerður Katrín stendur vaktina í utanríkismálum og sendi kveðju á Facebook á tíunda tímanum í morgun. „Það var ánægjuleg stund að undirrita fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna við Víetnam í Hanoi fyrir hönd Íslands. Með samningnum opnum við nýjar dyr fyrir íslensk fyrirtæki inn á ört vaxandi markað með yfir 100 milljónir íbúa. Viðskipti Íslands og Víetnam hafa þegar verið að aukast. Á síðasta ári jókst útflutningur okkar til Víetnam um 40% frá fyrra ári. Þar vega sjávarafurðir langþyngst, en tækifærin eru miklu fleiri. Íslensk fyrirtæki búa yfir dýrmætri þekkingu og hugviti, meðal annars á sviði jarðvarma og grænnar orku en talið er að jarðvarmi sé á 250-300 stöðum í Víetnam. Þar getum við komið sterk inn. Sömuleiðis er fjöldi tækifæra í tæknilausnum, sem mikil eftirspurn er eftir víða um heim,“ segir Þorgerður Katrín. Með samningnum verði tollar á nær allan núverandi útflutning EFTA-ríkjanna til Víetnam felldir niður, ýmist strax við gildistöku eða í áföngum. „Það þýðir betra samkeppnisumhverfi, greiðari aðgang að nýjum mörkuðum og aukin tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að vaxa og skapa verðmæti. Við Íslendingar erum lítil þjóð sem byggir stóran hluta velmegunar sinnar á viðskiptum við umheiminn. Þess vegna skiptir svo miklu máli að rækta viðskiptasambönd, ryðja hindrunum úr vegi og tryggja að íslenskt hugvit, vörur og þjónusta eigi greiða leið út í heim. Öflug utanríkisviðskipti skapa sömuleiðis störf, verðmæti og aukna hagsæld hér heima.“ Ferðalaginu í Asíu er ekki lokið. „Næst er það svo Kína þar sem ég mun eiga tvíhliða fundi, meðal annars við utanríkisráðherra og utanríkisviðskiptaráðherra Kína. Á þessum tímum er mikilvægt sem aldrei fyrr að treysta aðgang að mörkuðum og byggja þannig undir atvinnulíf og samfélag. Tækifærin eru víða.“ Jakob Frímann nýkominn frá Kína Þorgerður Katrín fylgir þar eftir heimsókn Jakobs Frímanns Magnússonar, fyrrverandi þingmanns Flokks fólksins, til Kína í síðustu viku að segja frá íslenskri menningu. „Kynntist Kína upp á nýtt er ég fékk boð um að halda fyrirlestur um íslenska menningu á fjölþjóðlegri ráðstefnu í hinni fögru borg Tianjin, skammt frá Beijing í sl. viku. Hef ekki komið til Kína síðan haldið var í tónleikaför Stuðmanna 1986,“ sagði Jakob Frímann í færslu á Facebook á mánudag. Jakob Frímann og Birna eiginkona hans í Kína. „Enga þjóð veit ég hafa tekið jafn stórt og metnaðarfullt stökk fram á við á jafn skömmum tíma og þessa þjóð - og það í harla víðum skilningi. Ræddi við CGTN ríkissjónvarpsstöðina, heimsótti fjölmarga staði og stofnanir og sat m.a. fundi í hinu risastóra þinghúsi, Höll fólksins. Með mér í för voru fulltrúar 52 þjóða, en þar bar af ástkær eiginkona mín, Birna Rún Gísladóttir, sem er einhver allra besti ferðafélagi sem hugsast getur. Hreifst hún mjög af landi og þjóð ekki síður en ég og sagði á öðrum degi þessarar átta daga heimsóknar; „Hingað skulum við koma sem fyrst aftur - og taka dætur okkar með!“ Það er tilhlökkunarefni að geta senn flogið beint til Kína með Air China og spái ég vaxandi áhuga Íslendinga á slíkum valkosti.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Víetnam Kína Viðreisn Utanríkismál Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira