„Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Smári Jökull Jónsson skrifar 26. október 2026 11:49 Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings segir viðbótina, sem Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra greindi frá í gær, ekki duga til. Vísir/Vilhelm/Múlaþing Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu.
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Í stað þess að fargjald sé niðurgreitt um fjörutíu prósent á nú að greiða fasta upphæð fyrir hverja ferð en Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra greindi frá því í gær, í kjölfar harðrar gagnrýni, að upphæðin yrði hærri en upphaflega var greint frá. Sveitarstjóri Múlaþings segir þetta ekki duga til. „Það hvort niðurgreiðslan á fluglegg, sem kostar kannski á milli 40 og 50 þúsund krónur, sé sjö eða níu þúsund er ekki það sem við erum að kalla eftir. Við höfum verið að kalla eftir því að Loftbrúin verði frekar aukin úr þessum 40 prósentum upp í 50 eða 60 prósent. Þannig að það er alveg ljóst að þetta dugar ekki til að koma til móts við það,“ sagði Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Eitthvað sem við getum ekki stjórnað“ Níu þúsund krónur í afslátt væri góður ef íbúar séu svo heppnir að ná að bóka flugfar sem kosti fimmtán þúsund. Það sé hins vegar nýju reglurnar sem þýði að afslátturinn verði oft nálægt tuttugu prósentum. Breytingarnar komi harðast niður á þeim sem þurfi að bóka flug með stuttum fyrirvara. „Það verður kannski skyndilegt fráfall hjá ættingja og jarðarför er skipulögð með stuttum fyrirvara. Þetta er eitthvað sem við getum ekki stjórnað eða þá að við erum kölluð skyndilega inn í læknatíma, rannsókn eða eitthvað slíkt sem kannski er ekki niðurgreitt af Sjúkratryggingum,“ bætir Dagmar við. Nær væri að horfa á flug sem almenningssamgöngur. Dagmar vill að hlutirnir verði skoðaðir í stærra samhengi og veltir því upp af hverju flug frá stöðum á landsbyggðinni sé ekki skilgreint sem almenningssamgöngur. „Það er verið að setja gífurlegar fjárhæðir í almenningssamgöngukerfið í Reykjavík. Það er ekki nærri því eins mikið sem er sett í almenningssamgöngur á landsbyggðinni, fyrir utan að við getum ekki nýtt strætó á milli Reykjavíkur og Egilsstaða því það tekur svo langan tíma að ferðast með þeim hætti á milli.“ „Það væri nær að horfa á flugið sem almenningssamgöngur og fá fjármuni í það sem þarf ef við viljum raunverulega halda byggð í öllu landinu.“ „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Hún segist ekki hafa heyrt frá ráðamönnum eftir að gagnrýnin kom fram, að öðru leyti en því sem kom fram í máli ráðherra í gær. Dagmar segist vilja vera bjartsýn á að stjórnvöld hlusti á raddir íbúa á landsbyggðinni. „Ég myndi bara vilja sjá hvernig við ætlum að reka þjóðarbúið ef allir ættu að búa á einum stað á höfuðborgarsvæðinu. Þá erum við ekki að fara að framleiða vörur sem við þurfum til að fá tekjur til landsins, þá veit ég ekki alveg á hverju við ætlum að lifa.“ „Þetta er okkar heimili. Hér viljum við vera og við viljum vera hér að skapa tekjur fyrir þjóðarbúið og leggja okkar af mörkum en það verður að gera okkur það kleift. Við getum ekki öll búið í Reykjavík og ég held að enginn vilji að Ísland verði þannig land.“ Hún telji að það sé sameiginleg sýn allra, líka ráðamanna, að hafa blómlegar byggðir um allt land. Þó verði að ná sameiginlegum skilningi á því hvað það merki og hvað það kalli á í þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar. „Það eru allir sammála um það að Reykjavík er auðvitað höfuðborgin okkar og það eru ákveðnar stofnanir, menningarstofnanir, háskólar og annað, sem munu alltaf vera þar og það eru allir sáttir við það en við þurfum bara að hafa aðgengi að þessu.“
Múlaþing Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Flug Sveitarstjórnarmál Byggðamál Reykjavíkurflugvöllur Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira