Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Áróra L Davíðsdóttir skrifar 27. október 2026 17:44 Landris í Svartsengi heldur áfram. Vísir/Vilhelm Landris mælist áfram á stöðugum hraða við Svartsengi en jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni er áfram lítil. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin. Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. „
Aflögunarmælingar sýna áfram landris við Svartsengi. Líkön sem byggja á mælingunum benda til þess að rúmmálsbreyting undir svæðinu haldi áfram með nokkuð stöðugum hraða,“ segir á vef Veðurstofunnar. Landrisið sýni að þrýstingur haldi áfram að byggjast upp á nokkurra kílómetra dýpi undir Svartsengi. Aukin spenna Jarðskjálftavirkni sé enn lítil i kvikuganginum þó hafi nokkur virkni verið vestan Grindavíkur. Þann 14. október mældist stærsti skjálftinn á svæðinu síðan í júní. Var hann 2,5 að stærð. „Skjálftavirkni á svæðinu við Víkur er talin tengjast aukinni spennu í jarðskorpunni í nágrenni Grindavíkur vegna landriss við Svartsengi. Þessi aukna spenna veldur aukinni spennulosun og þar með jarðskjálftum.“ Kvikuhlaup gæti leitt til eldgoss Á meðan landris heldur áfram undir Svartsengi er kvikuhlaup frá kvikusöfnunarsvæðinu áfram líklegasta sviðsmyndin. Slíkt kvikuhlaup gæti leitt til eldgoss. „Ekki er hægt að segja til um hvenær næsti atburður verður. Eftir því sem lengra líður frá síðasta kvikuhlaupi eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar.“ Áfram þurfi að gera ráð fyrir að fyrirvari gæti orðið stuttur, líkt og fyrir fyrri kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. Hættumat gildir óbreytt til 5. janúar. Hættumatið byggir á fjölbreyttum mæligögnum sem eru stöðugt uppfærð. Ef breytingar verða á virkni eða ný gögn gefa tilefni til verður hættumatið endurskoðað áður en gildistímanum lýkur.Veðurstofan Engin gögn bendi til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Eldstöðin Reykjanes-Svartsengi er áfram á viðvörunarstigi tvö, eða appelsínugulu. „Til að hægt sé að fullyrða að eldgosahrinunni sé lokið þurfa mæligögn að sýna skýr merki um minnkandi virkni yfir lengri tíma. Þótt tímabil líði án kvikuhlaupa eða eldgosa getur kvikusöfnun haldið áfram eða hafist á ný eftir hlé. Goshrinur á Reykjanesskaga geta staðið yfir í langan tíma með mislöngum hléum milli atburða. Langt hlé eitt og sér er því ekki vísbending um að virkni sé lokið,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira